
Skrifað af: Ágúst Kristján Steinarrsson Mánudagur, 17. október 2011 23:18
Miðvikudaginn 21. október fagnaði Íslenski alpaklúbburinn kuldanum og komandi vetri með veglegri myndasýningu og búnaðarbazar í sal Ferðafélags Íslands.
Óhætt er að segja að kvöldið heppnaðist vel þar sem um 100-150 mann mættu til að heyra Gumma og Robba Halldórssyni segja frá svaðilförum sínum á Denali síðasta sumar. Ljóst er að um krefjandi verkefni var að ræða þar sem þeir vörðu 18 dögum á „kaldasta fjalli heims“, eins og það er oft kallað. Ýmislegt í frásögninni stóð upp úr á má þar m.a. nefna:
- Salernisboxið sem þeir urðu að hafa með sér og gera öll sín stykki í.
- Óhapp með bensín þannig að stór hluti af því tapaðist og helltist á skíðaskó Gumma og eyðilagði þá nánast.
- Þriggja daga stormur sem hélt þeim föstum í tjaldinu og hafði óumflýjanleg áhrif á stemningu, eins og sást vel í upptöku sem var sýnd.
- Ukulele‘ið hans Gumma sem var með í ferðinni og hélt uppi fjörinu í einum búðunum.
- Stórmerkilegar frásagnir reyndra fjallamanna sem þeir hittu, þ.á.m. einum sem hefur gengið 50 sinnum á Denali og hefur farið átta sinnum á tindana sjö.
- Ótrúlegar útsýnismyndir frá fjallinu sem gerir hvern fjallamann órólegan.
Óhætt er að segja að Gummi og Robbi gáfu áhugaverðan fyrirlestur sem kveiktu eflaust áhuga allra sem á hlýddu að halda til fjalla og stefna enn hærra. Þá verður spennandi að sjá fyrirhugaða heimildarmynd sem þeir ætla að vinna úr öllum myndefninu sem þeir höf ðu tekið upp í ferðinni.
Eftir fyrirlesturinn hélt Fjallakofinn, sem var aðalstyrktaraðili Denali ferðarinnar, happdrætti með veglegum vinningum og gekk allur ágóði af happdrættinu til Ísalp. Ekki hefur verið ákveðið hvað verður gert við ágóðan en Fjallakofinn á bestu þakkir skilið fyrir stuðninginn við klúbbinn.
Gestum var boðið upp á Swiss Miss og Corny og fór það vel í maga og skapaði góða fjallastemningu. Á búnaðrabazarnum og gerðu ófári góð kaup, þó að úrval hafi verið heldur minna en síðustu ár.
