Borði

Valshamar

Eftir frábærlega vel heppnað Banff þá er komið að næstu nýliðaferð klúbbsins en við minnum samt á að nýliðaferðirnar eru auðvitað fyrir alla meðlimi.

Þar sem sumarið er komið þá er stefnan sett á að koma fólki í gang í sportklifrinu. Förinni er heitið í valshamar laugardaginn 28 maí með sunnudaginn 29 maí sem backup ef veðrið á laugardeginum klikkar. Við munum setja upp línur í ofanvað í skemmtilegar leiðir sem fólk getur spreytt sig á og gefið góð ráð fyrir þá sem eru að byrja að leiða. Nánari ferða tilhögun mun líta dagsins ljós þegar nær dregur en svona gróflega þá munum við sameinast í bíla fyrir hádegi, keyra upp í hvalfjörð og koma í bæinn fyrir kvöldmat. Seinasta nýliðaferð heppnaðist mjög vel þar sem 18 manna kraftmikill hópur brölti upp NA hrygg Skessuhornsins. Við hvetjum alla nýja og gamla Ísalpara til að skrá sig með tölvupósti hjá Dóra halldor86 (hjá) gmail.com