Borði

Húsfylli á Ísalpkvöldi

Ísalpkvöld var haldið miðvikudaginn 30.mars þar sem Jón Gauti Jónsson sýndi okkur feril sinn í máli og myndum fyrir um 30 mannas í sal klúbbsins þar sem naumlega tókst að finna til sæti handa öllum.

Það var víða komið við þar sem skíði, fjallgöngur, klifur og náttúra voru í fararbroddi. Efnið var skemmtilegt þar sem myndirnar komu víða við á landinu og í mismunandi tegund útivistar. Gott getur verið fyrir eldri fjallamenn að horfa til baka og hugsa hvernig þróunin hefur verið í gegnum árin og að kynna það fyrir þeim sem eru að byrja í sportinu.
Jón stóð sig frábærlega og trúlega hafa þónokkrir verið "frelsaðir til fjalla" eins og markmiðið var.

Næsti viðburður er á laugardaginn þegar farin verður ferð með nýja meðlimi klúbbsins á Skessuhorn.