Borði

Ísfestival 2011

Eftir of stóran skammt af lægðum í veðurspám þessa vikuna höfum við ákveðið að halda ísklifurdag að þessu sinni og stefna á Múlafjall í Hvalfirði. Ástæðan fyrir að við veljum Múlafjall er sú að okkur langar að stefna klifrurum á stað þar sem ekki er langt á milli leiða. Þannig skapast vonandi smá festivals stemming, fólk sýnir sig og sér aðra.
Svo er dag farið að lengja þannig að allir ættu að ná nokkrum leiðum á einum degi.

Um síðustu helgi voru fínar aðstæður og hefur verið frost í vikunni fyrir utan mánudag.

Fjölmennum í Múlann sem hefur ekki verið mikið í aðstæðum síðastliðið ár og viljum við endilega sjá einnig þá sem hafa verið að byrja í sportinu og lokið námskeiðunum í vetur. Þeir sem treysta sér ekki til að leiða verða paraðir með reyndari klifrurum en Múlafjall býður líka uppá möguleika á top rope klifri.

Hittumst hress á Select vesturlandsvegi f. neðan Ölgerðina kl. 8 á laugardagsmorgun. Ísklifur í Múlafjalli síðustu helgi