Skrifað af: Halldór Albertsson
Mánudagur, 14. mars 2011 09:52
Þá er komið að nýliðakvöldi á vegum ÍSALP. Þar sem við ætlum að bjóða nýja, komandi
félaga sérstaklega velkomna skal það tekið fram að maður þarf ekki að vera meðlimur í
klúbbnum til þess að mæta það eru allir velkomnir. Ekki má gleyma þeim sem hafa kannski
verið í klúbbnum í einhvern tíma en ekkert gert með okkur endilega að mæta núna.
Viðburðurinn verður 30. Mars næstkomandi kl 20:00 í félagsheimili okkar.
Þetta er kvöld er tilvalið til þess að koma sér af stað í starfi klúbbsins. Kvöldið mun byrja á
skemmtilegum fyrirlestri Jón Gauta þar sem Gauti mun kynna fyrir okkur hinar ýmsu hliðar
fjallamennskunnar og hvernig hann hóf sinn feril í fjallamennsku. Gauti hefur verið meðlimur
klúbbsins um árabil og verið iðinn á öllum sviðum fjallamennskunnar, auk þess er hann
leiðsögumaður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og finnst ekkert skemmtilegra en að
smita aðra af fjallabakteríunni.
Eftir fyrirlesturinn verður svo létt spjall tilvalið til þess að koma, sýna sig, sjá aðra og
kynnast fólki til þess að ferðast með. Síðan munuð við taka á móti skráningu í nýliðaferðina
sem verður farin laugardaginn 2 apríl. Ef veður og aðstæður leyfa er stefnan sett á
Skessuhorn í Skarðsheiði. Þetta verður ferð sem hentar öllum sem langar að komast í
skemmtilegt vetrarbrölt. Fararstjórar ferðarinnar eru Atli Pálsson og Sigurður Kristjánsson
stjórnarmeðlimir.
Félagsheimili ÍSALP er að Skútuvogi 1G, 104 Reykjavík. Bílastæði og inngangur er í portinu
að neðan. Gengið er inn frá Barkarvogi. ÍSALP deilir húsnæði með Klifurhúsinu.