Skrifað af: Guðmundur Freyr Jónsson
Miðvikudagur, 02. mars 2011 23:31
Ágætu félagar
Nú hefur nýkjörin stjórn skipt með sér verkum ásamt því að ræða áherslur stjórnar varðandi stefnu og starf klúbbsins. Það er stefna stjórnar að hlúa að því starfi sem fyrir er, en ný áhersluatriði eru helst utanumhald á efni sem varðar skráningu leiða, fræðslu og öryggi. Einnig eru málefni Bratta í skoðun og hlakkar stjórnin til niðurstöðu könnunarnefndar sem var skipuð á aðalfundi. Ritnefnd hefur haft öðrum hnöppum að hneppa undanfarið en verið er að skoða hvort nýtt ársrit komi út í vor eða bíði haustsins.
Framundan er að framkvæma fasta dagskrárliði sem hafa fest sig í sessi en einnig verður bryddað uppá nýungum í aðkomu nýrra og minna virkra félaga. Okkur sýnist að flestir séu sammála um að margir nýrri félagar hafi ekki fundið sér sess í klúbbnum og þarna viljum við gera bót á. Í mars verður boðið uppá nýliðakvöld og strax í framhaldi af því nýliðaferð Nánari kynning á þessu kemur fljótlega. Aðrir klassískir dagskrárliðir eru í farvatninu og verða auglýstir von bráðar.
Ef félagar hafa ábendingar eða skoðanir á málum klúbbsins þá eru eyru stjórnar ávallt opin.
Atli Pálsson