Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
Miðvikudagur, 16. febrúar 2011 23:08
Á landinu eru þessa dagana staddir tveir klifrarar frá Alaska, þau Carrie Wang og Wayne Todd. Þau eru með gott safn mynda með sér ætla að vera með myndasýningu fyrir Ísalpfélaga næsta föstudag (18/2).
Það er vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta enda nokkuð vist að þau hafi frá mörgu að segja. Þau eru mög aktíf í fjallamennsku, eru í fjallabjörgunarsveit Alaska og auðvitað alpaklúbbi Alaska (Wayne er nú í stjórn og var formaður).
Klifrarar, fjallaskíðafólk og annað fjallaáhugafólk ætti ekki að missa af þessu.
Nýkjörin stjórn hyggst bjóða upp á föstudagshressingu :) Um að gera að byrja gott föstudagskvöld á flottum myndum og umfjöllun um Alaska og þá möguleika sem þar eru í boði í sambandi við fjallamennsku.
Alltaf gaman að fá gesti sem eru svo almennilegir að gefa af sér. Nú er bara okkar að mæta.
Sýningin hefst kl. 20:00, föstudagin 18. febrúar og er í félagsaðstöðu Ísalp, Skútuvogi 1G.