
Skrifað af: Freyr Ingi Björnsson Mánudagur, 07. febrúar 2011 14:25
Ágætu félagar,
Samkvæmt veðurfæðingi eru framundan þrálátar suðaustan áttir með öllu tilheyrandi. Þegar ég spurði hvenær veturinn væri væntanlegur aftur varð fátt um svör. Það sjást víst ekki bláar tölur í veðurkortunum í bráð. Eftir þetta samtal og samráð við veðurfræðing þykir mér allt benda til þess að vænlegast sé að fresta fyrirhuguðu ísfestivali um óákveðinn tíma. Það vill enginn leggja á sig langferð, geta ekki klifrað vegna hita og lenda svo í snjóflóði þegar brekkan skríður undan manni á niðurleiðinni.
Það þarf varla að minna þá sem voru á þessum slóðum á vegum Ísalp hér um árið að brekkurnar fyrir ofan ísleiðirnar eiga það til hlaupa í sjó fram þegar hlýnar í veðri.
Þegar aðstæður bregðast á einum stað er oft litið til annarra þekktra ísklifursvæða í þeirri von að hægt sé að stýra félögum eitthvert annað til að gera sér glaða ísklifurdaga en slíkt virðist ekki vera í boði um þessar mundir. Stjórn verður engu að síður með puttann á púlsinum og Gsm roða á eyra næstu daga við að afla upplýsinga og áframsenda til félaga.
Fylgist með.
Kv,
Freyr Ingi Björnsson 