
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson Föstudagur, 21. janúar 2011 15:46
Miðvikudaginn 26. janúar munu 66°Norður og Félag íslenskra fjallalækna bjóða upp á fyrirlestur um háfjallagöngur. Það er enginn annar en Peter Habeler sem mun ausa úr viskuskálum sínum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00 í Háskólabíói. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Óþarfi er að skrá sig sérstaklega… bara mæta og vera hress.
Habeler er eflaust frægastur fyrir að fara, ásamt Reinhold Messner, á topp Everest án súrefnis, í fyrsta skipti sem það var gert. Það var árið 1978. Afrekið vakti heimsathygli enda var fram að þessu talið lífeðlisfræðilega ómögulegt að komast á toppinn án viðbótarsúrefnis. Það má því með sönnu segja að þeir félagar hafi brotið blað í sögu fjallaklifurs og háfjallalæknisfræði.
Habeler hefur að auki lagt að baki marga af hæstu tindum heims og sló á sínum tíma hraðamet á krefjandi klifurleiðum eins og til að mynda norðurvegg Eiger.
Það er óhætt að mæla með þessu fyrir félaga í Ísalp enda má vænta þess að Habeler hafi frá mörgu áhugaverðu að segja.
Everest Unmasked: Habeler og Messner komast á topp Everest 1978