Borði

Myndasýning: Klettaklifurferð til Lófóten

Fimmtudaginn 20. janúar klukkan 20:00 verður haldin myndasýning frá ferð Ísalpfélaganna Skabba, Bjögga og Sissa til Lófóten í Noregi. Þangað fóru þeir í ágúst síðasta sumar og voru í tvær vikur.

Svæðið er frábært til klettaklifurs og klárlega eitthvað sem klifrarar ættu að hafa í huga þegar þeir skipuleggja klifurfríið. Sem betur fer gáfu þeir sér tíma til að taka nokkrar myndir sem þeir ætla nú að sýna okkur og segja frá kostum svæðisins.

Sýningin hefst stundvíslega klukkan 20:00. Léttar veitingar í boði Ísalp.