
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Fimmtudagur, 09. desember 2010 00:12
Stjórn ÍSALP frétti á dögunum af áhugaverðri heimasíðu sem tileinkuð er íslenskum hreyfimyndum af jaðrinum.
Stofnandi síðunnar er Andri Ómarsson en glöggir félagar muna kannski eftir stuttmynd um ísklifur sem hann gerði og var sýnd á síðustu BANFF hátíð. Til að forvitnast aðeins nánar um þessa nýju síðu tókum við Andra tali og spurðum hann spjörunum úr.
Hvaðan kom hugmyndin að heimasíðunni, spenna.is?
Eftir að hafa oft undrað mig á hve lítið hefur farið fyrir íslenskri útivist og afþreyingu í sjónvarpi og fjölmiðlum almennt ákvað ég að hefja viðræður við íslensku sjónvarpsstöðvarnar um framleiðslu á vönduðum útivistarþáttum. Forgangsröðunin var hinsvegar þannig að efnið fékk ekki þann hljómgrunn sem ég hafði óskað, fjármálakreppan hafði nú einhver áhrif á það. Fór ég því að leita annarra leiða og fæddist þá hugmyndin að sjónvarpsþáttum á netinu. Ég þekki nokkra sem hafa reynt fyrir sér í netútgáfu en það hefur gefist vonum framar. Eftir miklar vangaveltur vildi ég gera eitthvað örlítið meira, ég vildi fá tækifæri til að skoða allt það myndefni sem er til úr afþeyingu okkar íslendinga bæði hér heima og erlendis. Mikið efni er til, það er ekki nein spurning, sumt er í tölvunni heima hjá fólki sumt á Vimeo og youtube en annað á fésbókinni. Þá kom ekkert annað til greina en að koma upp sameiginlegum vettvangi fyrir okkur til að deila efni með hvoru öðru. Þannig fæðist Spenna.is.
Hverjir standa að baki heimasíðunnar?
Ég, ásamt kvikmyndafyrirtækinu mínu Mons ehf. stöndum á bak við hana.
Er kvikmyndafyrirtækið Mons með eitthvað spennandi myndefni á lager til að halda síðunni lifandi?
Já við lumum á nokkrum skemmtilegum hlutum sem við tókum upp þegar við reyndum að sannfæra íslensku sjónvarpsstöðvarnar um ágæti íslenskrar afþreyingar af þessu tagi í sjónvarpi.
Síðan eru hugmyndirnar fyrir 2011 enn meira spennandi þannig að ég þori að lofa nóg af skemmtilegum hlutum.
Væri áhugi á að fylgjast með og taka upp efni á viðburðum ÍSALP, svo sem telemark- og ísfestivölum, klifri og skíðun almennt?
Heldur betur, vonandi fáum við tækifæri til að gera sem mest saman. Bæði að taka þátt í hlutum sem klúbburinn stendur fyrir sem og hlutir sem almennir félagar eru að gera. Ef ráðast á í skemmtilegar og spennandi ferðir þá væri gaman að fá að fylgjast með.
Hvernig hafa viðtökurnar verið hingað til?
Viðtökurnar hafa verið frábærar, allir taka þessu rosalega vel. Það skiptir einmitt höfuð máli, það erum við öll sem munum gera þessa síðu að því sem hún verður.
Ég hvet því alla til að dæla inn öllu sem þeir eiga, þetta getur verið allt frá einni stuttri klippu af einhverju sniðugu, eða ljósmynda-slideshow frá seinustu gönguferð og allt upp í stærri myndir frá mönnum sem kunna að ráðast á klippiforritin.
Stjórn þakkar Andra kærlega fyrir viðtalið og óskar honum alls hins besta með þessa nýju heimasíðu.
Við hvetjum félaga til að taka upp myndefni og birta það á spenna.is. Gaman verður að fylgjast með þessu glæsilega framtaki sem hefur alla burði til að geta orðið stórskemmtilegt ef við á annað borð tökum þátt í því.
Stjórnin