Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Mánudagur, 22. nóvember 2010 11:14
JÓLAGLEÐI ÍSALP-ARA Í FJALLAKOFANUM
24.nóvember frá kl. 18 – 21
Næstkomandi miðvikudag, 24. nóvember, þegar það verður nákvæmlega einn mánuður til jóla, vilja
FJALLAKOFA karlarnir Dóri og Brandur bjóða meðlimum ÍSALP í heimsókn.
Af hverju ættir þú sem ÍSALP-ari að mæta?
1. Það er hægt að gera alveg ótrulega góð kaup þetta kvöld á öllu sem heitir Black Diamond, s.s. bakpokar, vettlingar og svo allt járnaglingrið, 20 – 50 % afsláttur! Auk þess er margt Marmot djásnið á “ÍSALP – TILBOÐI ” og margt fleira spennandi, sem hægt er að skoða betur þegar komið er á staðinn!
2. Þú getur látið taka frá allar jólagjafirnar sem þig langar að fá ömmu og afa og hina í fjölskyldunni til að gefa þér. Þú lætur merkja þér einhverja vöru á góðum kjörum og hún verður svo að vera svo sótt af þeim sem ætlar að gefa þér þetta, fyrir 5.des. nk.
3. Það getur líka verið gaman að koma í Fjallakofann til að skoða dótið og hitta þá um leið alla hina félagana í ISALP og heyra hvað þeir eru að gera þessa dagana.
Veitingar í boði og allir sem mæta verða leystir út með gjöf frá FJALLAKOFANUM .
Verið velkomin!
Með VINSEMD OG VIRðINGU,
Starfsfólk Fjallakofans.