Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Fimmtudagur, 21. október 2010 10:46
Þrír félagar úr Ísalp, þeir Skabbi, Bjöggi og Sissi, fóru í ágúst til Lofoten að klifra í háum granítveggjum. Þeir fengu leiðangursstyrk 66°Norður 2009 fyrir túrinn, en hann heppnaðist afar vel.
Miðvikudaginn 27. okt. n.k. munu þeir sýna myndir úr ferðinni. Um er að ræða mynda- og fræðslukvöld 66°Norður og mun þar ýmislegt fleira áhugavert vera í gangi.
Dagskráin er sem hér segir:
- Myndasýning frá klifurferð til Lofoten í Norður Noregi sem hlaut Leiðangursstyrk 66°NORÐUR árið 2009
- Kynning á rannsóknarleiðangri sem þrír læknanemar undir leiðsögn Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis og prófessors fóru á Kilimanjaro í janúar 2010 til þess að kanna áhrif súrefnisskorts á virkni.
- Kynning á Arctic Edition og Vetrarferð 66°NORÐUR
- Leiðangursstyrk 66°NORÐUR 2010 úthlutað
Hvar: Verslun 66°Norður, Faxafeni 12
Hvenær: Miðvikudaginn 27. október, frá kl. 20 - 22.
Léttar veitingar í boði.
Allir eru velkomnir og vonast þeir félagar til að sjá sem flesta.