Borði

Efni í ársritið

Vinna við ársrit ísalp 2010 er hafin. Eins og undanfarin ár óskum við í ritnefnd eftir efni frá félögum í klúbbnum. Undirtektir hafa verið frábærar undanfarin ár sem hefur skilað sér í veglegum og skemmtilegum ársritum. 

Við leitum að:

Skemmtilegum ferðasögum eða fróðleiksmolum, hvort heldur sem er glóðvolgum fréttum, sögnum aftanúr grárri forneskju eða fróðleik um fjöll, klifursvæði, græjur, eða bara hvað sem er. Textinn skal ekki fara yfir 5000 slög, nokkrar myndir mega gjarnan fylgja.

Efni í annál íslenskrar fjallamennsku. Fórst þú á fáfarnar slóðir á Íslandi eða settir upp nýjar leiðir, eða í klifur- eða fjallaferð út fyrir landsteinana? Þekkir þú til e-a sem það gerðu? Sendu okkur línu og hjálpaðu okkur að halda utanum framþróun fjallamennsku á Íslandi!

Myndum af klifri og fjallamennsku, skíðamennsku og almennri fjallagleði. Sendu okkur nokkrar, þær gætu átt heima á prenti!

Efni skal sent á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , skilafrestur er til 1. nóvember.

Ritstjórn