Borði

Vel heppnað sísonstart-MYNDIR

Vertíðin hjá ÍSALP fer vel af stað.

 


Þrátt fyrir heldur hlýja vinda og lítinn vetur í lofti þá eru félagar Íslenska alpaklúbbsins komnir í gírinn. Í kvöld var vetrarvertíðinni startað með BÍS-klifri og klifursumarið á Hnappavöllum gert upp í máli og myndum.

Páll Sveinsson hefur haft yfirumsjón með því að bæði búa til festur og setja upp leiðir í Klifurhúsinu til þess að hægt sé að stunda svokallað BÍS-klifur (boulder-ísklifur). Nú í kvöld voru BÍS-leiðirnar formlega opnaðar og mætti fjöldi klifrara, bæði nýjir og reyndir, til þess að testa leiðirnar. Einnig mættu margir til þess að taka þátt í dagskránni seinna um kvöldið en nýttu tækifærið og fylgdust með klifrurum reyna sig í leiðunum sem margar hverjar voru krefjandi. Sumir áhorfendur kröfðust þess að fá meira aksjón í klifrið og varð Palli þeim að ósk sinni með dramatísku falli úr nokkurri hæð. Viðar tók sig einnig til og náði að hrufla sig þannig að blóðið rann. 
Klifrarar fengu að prófa nýjustu drytool græjuna frá BD sem heitir Fusion, en Halldór í Fjallakofanum lánaði axirnar til prufu.


Arnar klifrar

Viðar sýnir takta

El Maestro. Palli leiðameistari!
Berglind í flottri traversu

Er leið á kvöldið fóru bæði klifrarar og áhorfendur ánægðir upp í félagsaðstöðu þar sem Jón Viðar hélt myndasýningu um Hnappavelli. Fór hann yfir í máli og myndum hvernig uppbyggingin hefur verið á Hnappavöllum síðustu ár, sýndi t.d. myndir af nýjum leiðum og svæðum. Gaman var að heyra af uppbyggingu á Tóftinni sem nú er að mestu lokið en Jón Viðar hefur verkstýrt þeirri framkvæmd. Er nokkuð ljóst að Tóftin mun bæta til muna aðstöðu klifrara í rysjóttri Hnappavalla-veðráttunni. 
Stjórn þakkar öllum sem mættu í kvöld. Góð byrjun á góðu vetrarstarfi!