Borði

Leiðangursstyrkur 66°N - Viðtal við Helgu Viðars.

 

Eins og flestum félögum er kunnugt hlutu Ísalpararnir Bjöggi, Skabbi

og Sissi leiðangursstyrk 66°N og eru þeir svo að segja nýlentir eftir afar

velheppnaðan klifurleiðangur til Lofoten í Noregi.

 

Okkur langaði til að forvitnast örlítið um þennan leiðangursstyrk og

höfðum því samband við Helgu Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra

markaðssviðs Sjóklæðagerðarinnar og lögðum fyrir hana nokkrar

spurningar.

 

1) Hverjir mega sækja um leiðangursstyrk 66°NORÐUR?

- Það mega allir sækja um. Við veitum tvo

styrki árlega og er annar til krefjandi leiðangra á nýjar slóðir (sá

sem unsóknarfresturinn er að renna út vegna) og hinn er til styrktar

góðu málefni.

 

2) Þurfa leiðangrar að vera af ákveðinni gerð eða þurfa þeira uppfylla

lágmarkskröfur um kostnað, tímalengd eða efiðleikastig?

- það eru ekki gerðar kröfur um ákveðna tímalengd, kostnað eða

erfiðleikastig. Þó gefur það auga leið að umsóknir fyrir styrki til

krefjandi leiðangra þurfa að uppfylla meiri kröfur um erfiðleika en

styrkir til góðs málefnis. Við erum með dómnefnd sem er skipuð

einstaklingum frá ÍSALP, Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, Landsbjörgu,

Útivist og Bandalagi Íslenskra skáta auk aðila frá okkur. Dómnefndin

fer yfir og velur hver hlýtur styrkinn og við treystum þessum aðilum

mjög vel til þess að greina hvaða umsækjandi á að hljóta styrkinn.

 

3) Hefur einhver sótt um styrk vegna leiðangurs innanlands?

- Já það hafa margir sótt um styrk vegna leiðangra innanlands. Allir

sem sóttu um styrk vegna góðra málefna voru að sækja um styrk til

ferða innanlands. Þegar kemur að styrkjum vegna krefjandi leiðangra á

nýjar slóðir þá hefur það verið blandað en þó aðeins fleiri sem sóttu

um vegna ferðar út.

 

4) Má sækja um styrk ef maður hefur fengið styrk áður?

- Já það er ekkert sem kemur í veg fyrir það að einstaklingur/hópur

sem hefur hlotið styrk fái hann aftur. Hér kemur dómnefndin aftur inn

og ef hún telur sama aðila aftur vera bestu umsóknina þá fær hann

styrkinn burt séð frá því hvort hann hafi fengið hann áður.

 

5) Hvernig hafa viðtökur við styrknum verið, þ.e. hversu margar

umsóknir fáið þið að jafnaði fyrir hvern styrk?

- Við höfum fengið um 10 umsóknir fyrir hvorn styrk en þeim fer fjölgandi.

 

6) Hverjir hafa hingað til hlotið styrkinn og fyrir hvers konar leiðangra?

- Hingað til höfum við einungis veitt 2 styrki. Við höfum veitt einn

styrk til krefjandi leiðangurs á nýjar slóðir en hann var veittur

síðasta haust til félaga úr ÍSALP sem fóru í klifurferð til Lofoten í

Noregi. Þeir eru nýkomnir til baka úr ferðinni sem mér sýnist á öllu

að hafi heppnast mjög vel. Svo erum við búin að veita einn styrk til

styrktar góðu málefni en hann hlaut Jón Gunnar Benjamínsson til þess

að vekja athygli á aðgengi fatlaðra að hálendinu. Sá leiðangur hlaut

nafnið Þvert yfir Ísland. Jón Gunnar, sem er bundinn hjólastól, fór

þvert yfir landið á fjórhjóli. Nú er svo komið að því að veita styrk

til krefjandi leiðangra í annað sinn og umsóknarfresturinn rennur út

núna á sunnudaginn 10. október.

 

7) Er eitthvað sem eykur líkurnar á því að hljóta náð fyrir augum dómnefndar?

- Við treystum því að dómnefndi og það fólk sem í henni er sé

hlutlaust þegar það er að velja hverjir hljóti styrkinn og þannig sé

fyllstu sanngirnis gætt við úthlutun styrksins.

 

8) Er Leiðangursstyrkur 66°NORÐUR kominn til að vera?

- Já við vonum það og við munum leggja okkar að mörkum til þess að svo

sé. Hins vegar áskiljum við okkur þann rétt að fella út eina og eina

úthlutun ef þær umsóknir sem berast uppfylla ekki þær kröfur sem

dómnefndin telur að þurfi að uppfylla til þess að fá styrkinn. Við

munum til dæmis ekki veita styrk til krefjandi leiðangra til hóps sem

ætlar í tjaldútilegu á Þingvelli :)

 

Þar hafið þið það! Umsóknarfrestur rennur út 10. október og því ekki

seinna vænna en að veita þessu áhuga og sækja um ef þannig liggur á

manni.

 

Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna hér:

http://www.66north.is/um-66nordur/frettir/nr/579/


Stjórnin

 


img_9734