Borði

Árleg vinnuferð í Tindfjallaskála

Tindfjallaskáli kemur ágætlega undan fyrsta árinu eftir endursmíði. Um helgina fórum við í árlega viðhalds- og vinnuferð uppeftir. Það helsta sem var gert núna:

 

1) Settur lokulisti undir millihurðina, nú trekkir lítið undir hana.

 

2) Heflað af hurðinni, þar sem hún tók töluvert í karminn. Lokast eins og draumur núna.

 

3) Fyrirtaks koffort, sem Hallgrímur Magnússon lét smíða fyrir okkur, er nú kirfilega tjóðrað undir norðurveggnum. Koffortið er hið mesta þarfaþing, heilmikið gímald um 460 lítrar að rúmmáli. Hugmyndin er að mögulegt sé að geyma bakpoka, brodda, axir og annað þar til að auka plássið í andyrinu.

 

4) Við settum vír-kósa í strekkjarana, sem strekkja vírana yfir þakið á skálanum,  og strekktum hæfilega á báðum vírunum

 

5) Bættum 45 lítrum af olíu á olíutunnuna. Tunnan tekur þó meira og má bæta við öðru eins.

 

6) Ætluðum okkur að setja hlera fyrir austurgluggann, en urðu rafmagnslausir á borvélinni áður en því lauk. Erum þó langt komnir.

 

7) Þrifum skálann og tókum til og settum nýtt net í gaslukt.

 

8) Komum með nýjar plastaðar leiðbeiningar fyrir kabyssu. Merktum helstu hnappa hennar.

 

Gátum ekkert unnið við að hlúa að Akademíunni,  Þegar fór að líða á laugardaginn gerði spænuvitlaust suðaustan rok með grenjandi rigningu.  Þannig að hvorki var hægt að siga Sigga né Sissa í svoleiðis stúss. (Og Gutti hélt á aðgerðarlistanum.)

 

Gerðum rannsóknir á því hvers vegna slokknar stundum í kabyssunni þegar opnað er út.  Niðurstaðan er sú, að við aðstæður þegar blæs hraustlega af austan eða suðaustan, og útihurðin er opnuð, myndast undirþrýstingur í skálanum sem dregur loft niður í strompinn. Eldurinn í olíunni sloknar,  og það reykir út úr kabyssu með tilheyrandi olíulykt.

 

Besta ráðið við þessu var að hafa millihurð lokaða áður en opnað var út og  að hafa rifu á glugga við kabyssu.  Þannig tókst að halda kabyssunni gangandi.  Þegar það slokkknaði í olíunni var best er að bíða með að kveikja upp þar til kabyssan hafði kólnað, öðrum kosti verður hvellur þegar kviknar í olíugufunni. Vegna þess möguleika að það slokkni á kabyssunni mælum við með að slökkt sé á henni áður en fólk fer að sofa og leggjum áherslu á að ávallt sé höfð rifa á glugganum.

 

En skálinn er tilbúinn undir veturinn og alltaf jafn frábært að koma uppeftir. Um að gera að fara að bóka gistinætur!

 

Kveðja,

Gutti, Siggi Skarp og Sissi