Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Laugardagur, 10. apríl 2010 17:58
Banff fjallakvikmyndahátíðin stendur hjarta okkar nærri. Þar sem við viljum að hátíðin verði mest og best þurfum við að fresta henni um tvær vikur.
Hún mun verða haldin á áður auglýstum stað, í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni en nýjar dagssetningar eru mánudags- og þriðjudagskvöldið 26. og 27. apríl.
Vonandi hittir Banff vel á þetta árið, ekki þykir verra að hafa tvær auka vikur til að láta sig hlakka til!
Innan nokkurra daga verður dagskráin og styrktaraðilar kynntir til leiks.
Bíðið spennt!
Þar sem Banff seinkar þá fá allir ljósmyndaáhugamenn sem ætla taka þátt í ljósmyndasamkeppninni einnig tvær vikur í viðbót til að finna til allar afburðamyndirnar sem liggja á hörðu diskunum.
Skilafrestur er nú á miðnætti 25. apríl.
Með vorkveðju,
Stjórn ÍSALP