Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Mánudagur, 29. mars 2010 23:01
Nú má segja að komin sé hefð fyrir ljósmyndasamkeppni Ísalp en þetta er 4. árið sem hún er haldin.
Að venju verða verðlaunamyndir kynntar á BANFF fjallakvikmyndahátíðinni sem fer fram dagana 26. og 27. apríl. Skilafrestur á myndum er á miðnætti sunnudagskvöldið 25. apríl.
Keppt verður í þremur flokkum:
- Skíði
- Ísklifur
- Mannlíf á fjöllum
Reglur keppninnar :
- Myndum skal skila á jpeg sniði (.jpg)
- Upplausn myndar er frjáls en hafa skal í huga að hugsanlega fer mynd á prent og því er gott að upplausn sé að minnsta kosti 2481px X 1749px.
- Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum, teikna eða bæta inn texta á myndina.
- Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Mælt er með að þátttakendur taki fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni.
- Þátttakandi tiltekur í hvaða flokk myndin á að keppa.
* Ísklifur
* Skíði
* Mannlíf á fjöllum
- Hámarksfjöldi mynda á hvern þátttakanda eru 3 myndir í hverjum flokki, samtals 9 myndir sé tekið þátt í öllum flokkum.
- Myndin skal vera tekin á þessari vetrarvertíð og rennur skilafrestur út á miðnætti 25. Apríl.
- Myndir skulu sendast á veffangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hver póstur sem fer á póstfangið má ekki innihalda stærra viðhengi en 10 MB.
Keppendur fá staðfestingu á móttöku mynda áður en frestur rennur út.
- Dómnefnd verður skipuð 2 fulltrúum úr stjórn og ljósmyndara.
- Verðlaun verða veitt fyrir bestu mynd í hverjum flokki og verða þau tilkynnt á Banff kvikmyndahátíðinni.
- Síðustu árin hafa verðlaunamyndir birst í ársriti ÍSALP.
- Ef spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við Sveinborgu í síma 6957581 eða á sveinborg (hjá) hotmail . com