Borði

Góðar fréttir af ísaðstæðum í Öræfunum

Gleðifréttir berast okkur úr Öræfunum þar sem ísinn þykknar og þéttist með hverjum klukkutímanum sem líður.

Einhverjar leiðir eru nú þegar í aðstæðum og samkvæmt heimamanninum styttist óðum í að fleiri fylgi í kjölfarið ef marka má veðurspána sem vart verður ísvænni.

Öræfin bjóða upp á gríðarlegt magn ísleiða sem spanna alla flóruna í þeim efnum. Fullorðins verkefni bíða þar eftir leikfélögum sem hafa burði í að frumfara eða endurtaka. Minni verkefni eru þar sömuleiðis í massavís og eiga þau sjálfsagt eftir að nýtast byrjendum vel sem geta bæði æft klifurgetuna í ofanvað eða við leiðsluklifur.

Gisting á vegum Ísalp verður sem fyrr í Vesturhúsum og eru þeir sem ætla að taka þátt í ísfestivali alpaklúbbsins beðnir um að skrá sig hjá Helgu Maríu á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Jafnframt eru þeir sem nú þegar hafa skráð sig beðnir um að afboða sig fari svo að þeir sjái sér ekki fært um að mæta.

Til að kynda upp í mönnum má einnig benda á að leiðir í Testofunni í Stigárdal eru komnar í aðstæður en á ísfestivalinu árið 2000 fór þangað inn flokkur manna og kleif áður ófarnar ísleiðir eins og þeim væri borgað fyrir það. Endilega skoðið leiðarvísi frá Einar í Hofsnesi.

Þó lágu ekki allar mögulegar leiðir í valnum eftir þann vaska hóp og enn má skrá nöfn sín á spjöld íslenskrar fjallamennsku með frumferðum þar inni. Merkilegt þykir einnig að á sömu slóðum hefur opnast nýr möguleiki á ísleiðum með bráðnun jökla því í gili nokkru í Stigárdal eru ókannaðar og þar af leiðandi ófarnar leiðir sem enginn sá á ísfestivalinu árið 2000 þar sem gilið var fullt af jökulís á þeim tíma.


Fyrir byrjendur í sportinu er bent á magnað svæði við Kvísker en um 10 mínútna gangur er að því af hlaði Kvískerjabæja. Sjá umfjöllun um svæðið á síðu Einars.

Þar eru um 10 fallegar leiðir í léttari kantinum, flestar 2 spanna en einhverjar lengri. Þar sest ís að venju fyrst og helst lengst þannig að gera má ráð fyrir feitum ís á því svæði.
Tilvalið til ofanvaðsæfinga.



Bestu kveðjur,

Festivalsnefndin.