Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 09:26
Nú verða lesnar fréttir
Festivalsnefnd bárust á dögunum fréttir frá iðnum Ísölpurunum sem fóru austur um helgina að ís á svæðinu væri af skornum skammti, sá ís sem almennt væri til staðar væri þunnt ísskæni og yfirleitt með rennandi vatni bakvið. Brattur ís hefði víðast hvar brotnað niður, en láréttur ís væri enn í klakaböndum.
Í gærkvöldi brá svo verr við þegar aðal ísfréttamaður Öræfasveitar staðfesti sögur þessar um ísleysi á svæðinu. Samkvæmt Einari er Stigárdalurinn, sem hann telur að sé góð mælistika á aðstæður á öðrum svæðum, næsta íslaus.
Þar með fækkar þeim klifursvæðum sem stuttur gangur er að og þó að Öræfasveitin bjóði upp á klifurmöguleika á hærri stöðum er það ekki beint í samræmi við ungmennafélagsandann sem við kjósum að einkenni ísfestivöl Ísalp.
Í ljósi aðstæðna verður því brugðið á það ráð að fresta árlegu ísfestivali alpaklúbbsins um eina viku og halda ótrauð stefnu okkar á hin makalausu ísklifursvæði Öræfanna, bara viku seinna.
Sérlegur veðurfræðingur ÍSALP, Hálfdán, segir nokkuð eindregna norðan- og norðaustanátt í kortunum næstu vikuna. Þó sé ekkert hægt að sjá með nákvæmni um þróunina en að það líti að mestu út fyrir frost, þurrviðri sunnanlands og úrkomu með köflum fyrir norðan.
Norska langtímaspáin gerir svo ráð fyrir að sá kuldi sem Öræfasveitin þarfnast sé á leiðinni.
Nánari fréttir um framvinduna á næstu dögum.