Borði

Ísklifurfestival í uppsiglingu

Nú liður senn að ísklifurfestivalinu sem að þessu sinni verður haldið austur í Öræfum. Stjórn Ísalp vill gjarnan árétta nokkur atriði áður en gleðin brestur á.

Þátttaka. Ef þú ætlar að vera með skaltu ganga í ÍSALP og greiða árgjald (skráning hér). Það er skylda!

Gisting. Búið er að taka frá heilt hús í Vesturhúsum (www.vesturhus.is). Nóttin kostar 3000 krónur á mann. Gert er ráð fyrir að klifrarar gisti í Vesturhúsum. Hafi klifrarar annað í huga verður að tilkynna það Helgu yfirskipuleggjanda í tölvupóst ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ). Stjórnin mælir með að sem flestir gisti Vesturhúsum, enda er partur af stemningunni við festivalið að segja hetjusögur í lok dags.

Öryggismál. Allir klifrarar SKULU tilkynna sig til "öryggisfulltrúa festivalsins" sem mun hengja upp lista yfir klifrara/teymi í Vesturhúsum. Á þennan lista skulu klifrarar/teymi merka sig "inni" eða "úti" eftir atvikum. Áætluð staðsetning má gjarnan fylgja með sé hún þekkt í upphafi dags. Tilgangurinn með þessu er að hægt sé að fylgjast nokkurn veginn með hvort fólk skilar sér í hús í lok dags.

Matur/búnaður. ÍSALP býður í kjetsúpu á laugardagskvöldinu. Að öðru leiti eru klifrarar sjálfala.

Undirbúningskvöld. Þann 10.2 ætlar ÍSALP að halda undirbúningskvöld í húsakynnum klúbbsins í Klifurhúsinu (sjá dagskrá hér til vinstri). Þar verður farið yfir eitt og annað sem gott er að huga að í undirbúningi fyrir festivalið. Einnig verður farið yfir fyrirkomulagið á öryggismálum og annars sem klifrurum leikur hugur á að ræða.  Klifrarar eru hvattir til að mæta.

Stjórnin