Borði

Snjóflóðafyrirlestur á ÍSALP-kvöldi

Nú næsta miðvikudag (13.01.2010), verður haldið ÍSALP-kvöld í sal klúbbsins í Skútuvoginum. Planið er að hafa föst kvöld, fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og markmiðið að vera með eitthvað bitastætt í gangi í hvert skipti.

Að þessu sinni er það enginn annar en Leifur Örn Svavarsson, sérfræðingur í snjóflóðavörnum á veðurstofunni sem mun mæta og flytja erindi um snjóflóð í tengslum við fjallamennsku. Þetta er auðvitað eitthvað sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Margir í klúbbnum þekkja eða hafa heyrt um Leif en hann er jú einn reynslumesti fjallaleiðsögumaður Íslands. Hann hóf einmitt fjallamennskuferil sinn með Íslenska Alpaklúbbnum og það fyrir margt löngu. Leifur á að baki fjölda leiðangra og klifurferða hérlendis sem erlendis, þar á meðal á Grænlandi, í Ölpunum, Alaska og Himalaya.

Það er mikill fengur að fá reynslubolta eins og Leif til að fytja erindi fyrir félaga Ísalp og hvetjum við alla til að mæta.

Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20:03.

Þetta er fyrri hluti af tvennu fyrirlestra í tengslum við snjóflóð en Árni Jónsson (snjoflod.is) mun inna skamms heiðra okkur með nærveru sinni og tala um snjóflóðaýla og ýmislegt í tengslum við þá.