
Skrifað af: Björk Hauksdóttir Mánudagur, 21. desember 2009 21:13
Laugardaginn 19. desember fór fram árlegt jólaklifur Ísalp, því miður var ekki hægt að skíða sökum snjóleysis í grennd við höfuðborgina. Ákveðið var að halda til klifurs á Sólheimajökli. Sex félagar, Bragi, Berglind, Björk, Arnar Þór, Arnar og Siggi, hittust á Select klukkan 8 um morguninn. Keyrt var í myrkri og komum að jöklinum þegar það byrjaði að birta. Fundum fljótt tvo fína svelgi nálægt hvorum öðrum sem hægt var að leika sér í, hægt að velja lengri og styttri leiðir sem voru báðum megin við 90 gráðurnar. Settar voru upp nokkrar línur og klifrað í kuldanum, en nokkuð kalt var í veðri og með hressandi vindhviðum. En það voru sáttir einstaklingar sem héldu heim á leið kl. 16 eftir gott klifur.




