Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
Laugardagur, 05. desember 2009 11:47
Eins og farið er að kvisast út þá er glóðvolgt ársrit Ísalp á leið inn um lúgur félaga núna á næstu dögum. Þetta er líklega allra veglegasta ársritið hingað til og inniheldur það fjölda leiðavísa bæðir fyrir kletta og ís, auk fjölda greina frá félögum eins og venja er. Ritið er merkt 2008-2009 sem þýðir þó ekki að fjallað sé um heil tvö ár heldur hefur þetta með breytta stefnu og útgáfutíma að gera. Bendum lesendum á að renna yfir pistil ritstjórnar fremst í blaðinu þar sem þetta er útskýrt.
Starfsemi klúbbsins hefur að undanförnu verið mjög blómleg og mikill uppgangur í fjallamennsku. Ákveðið var að prenta límmiða með merki klúbbsins og dreifa til félaga. Um er að ræða límmiða sem er 5cm í þvermál og hannaður til að þola nokkuð vel þá áníðslu sem hjálmur þarf að þola og svo annar stærri sem er öfugur (7,5cm) og því tilvalinn fyrir rúður í t.d. bíl. Með þessu vonumst við til að gera klúbbinn enn sýnilegri. Með ársritinu í ár koma því tveir misstórir límmiðar og félagsskírteini sem vert er að passa vel upp á enda ýmsir afslættir sem fást út á það. Munið að kíkja vel í umslagið svo aukaglaðningar lendi ekki óvart í pappírsendurvinnslukörfunni með umslaginu.
Enn er að bætast á listann yfir afslætti. Hægt er að
skoða hann hér.