Skrifað af: Björk Hauksdóttir
Sunnudagur, 18. október 2009 21:30
Minnum á Shivling myndasýningu frá leiðangri fimmenninganna, Arnars Þórs Emilssonar, Berglindar Aðalsteinsdóttur, Eiríks Geirs Ragnars, Gunnars Sverris Ragnars og Kára Erlingssonar, til Indlands til að freista þess að klífa fjallið Shivling (6543m) haustið 2008.
Sýningin fer fram í húsi Hjálparsveitar skáta í Garðabæ fimmtudagskvöldið 22.október kl 20:00.
Sama kvöld ætlar hópurinn að standa fyrir söfnun á útivistarfatnaði og fjallabúnaði fyrir indverska sherpa. Hvetjum fólk til að koma með gamlan útivistarfatnað eða búnað sem er ekki í notkun lengur. Þessi búnaður mun síðan öðlast nýtt líf í Himalayafjöllunum.
Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir!
Sjá nánar í dagskránni