Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Fimmtudagur, 15. október 2009 10:47
Nú ber vel í veiði fyrir græjuþyrsta því eins og allir vita verður hinn heimsfrægi Búnaðarbazar haldinn í kvöld í húsi Flugbjörgunarsveitarinnar við Flugvallaveg í kvöld. Herlegheitin hefjast kl. 20:00 og eru allir hvattir til að mæta, selja, kaupa, segja sögur, sjá andlit, drekka kakó og vera hressir.
Þeir sem vilja öðru fremur eignast ónotaðan fjallabúnað geta einnig gert góð kaup í kvöld. Okkur barst til eyrna að Útilíf í Glæsibæ verði með sérstakt afsláttarkvöld fyrir fjalla- og ferðalanga. Mun þar verða staðfastur 20% afsláttur af útivistarbúnaði (ekki þó af snjóflóðaýlum) auk sértilboða.
Starfsmenn þar voru víst að ljúka við að taka upp vetrarsendingar svo að eitt og annað forvitnilegt er á boðstólnum. Útilíf minnir einnig á vaxtalausar léttgreiðslur en nánari uppl. um svoleiðis nokk fást hjá starfsmönnum. Þar byrjar ballið kl. 19:00.
Drög að kvöldinu:
a) Finna búnað til að selja, finna út hvað þig langar í eða öllu heldur ,,vantar" mest.
b) Taka út reiðufé
c) Koma sér í Útilíf, Glæsibæ. Afsláttarkvöld hefst þar kl. 19:00
d) Koma sér á Búnaðarbazar Ísalp og FBSR sem hefst kl. 20:00
e) Koma sér heim á leið, sáttur eftir skemmtilegt kvöld.
Sjáumst í kvöld!
Stjórnin