
Skrifað af: Björk Hauksdóttir Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 22:39
Síðastliðna helgi, helgina 14-16 ágúst, hélt hópur vaskra karla og kvenna uppí Tindfjöll og með í för var Tindfjallaskáli. Það var ánægjulegt að fara með skálann til baka eftir árs fjarveru í Reykjavík. Þar sem skálinn var lagfærður og er nú nánast sem nýr.
Á fimmtudagkvöldi var farið með skálann í lögreglufylgd frá Reykjavík til Hvolsvallar og á föstudag hélt hann hægt og örugglega á vörubíl HSSR upp brekkurnar ofan við Fljótsdal. Eldsnemma á laugardagsmorgun hófst vinna við frágangi á grunn, undirstöðum, grjóthleðslu, kamarsmíði, holugröft og fleiri verkefni sem var síðan haldið áfram með á sunnudag. Öll verkefni sem voru unnin gengu ótrúlega vel og þakkar Ísalp öllum þeim sem komu að verkefninu.
Skálinn er nú kominn aftur í Tindfjöll og tilbúinn að hýsa fjallagarpa um ókomin ár. Það á enn eftir að kára nokkur smáatriði og styttist í að hægt verði að bóka skálann. Það verður tilkynnt hér á síðunni hvernig því verður háttað.
Margar myndir voru teknar um helgina:
Myndir frá Björk: http://picasaweb.google.com/bjorkh/FlutningurTindfjallaskala#
Myndir frá Sigga: http://siggiskarp.smugmug.com/gallery/9314519_M4Eef#622759848_pkTPD
Myndir frá Maggý: http://maggy.smugmug.com/gallery/9314962_4cHpb#62268
