
Skrifað af: Bragi Freyr Gunnarsson Föstudagur, 19. júní 2009 00:08
Skálahópur Ísalp með Guttorm í fylkingarbrjósti hefur lyft grettistaki, en skálinn hefur verið endurreistur nánast frá grunni og stefnir í verklok. Áætlað er að flytja skálann á sinn stað um miðjan ágúst.
Farin verður undirbúningsferð upp í Tindfjöll helgina 26-28 júní. Ísalparar eru hvattir til að mæta og leggja hönd á plóg.
Ekki er nauðsynlegt að vera handlaginn úr hófi fram. Hér þarf hendur til að bera grjót og binda járn.
Nánari upplýsingar veita meðlimir skálahópsins.
