
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Þriðjudagur, 16. júní 2009 11:02
Satyabrata Dam, einn af fremstu fjallgöngumönnum Indlands, er nú í 4ra vikna heimsókn á Íslandi og mun hann flytja erindi með myndum í húsnæði Alpaklúbbsins að Skútuvogi 1G þriðjudaginn 16. júní kl. 20. Hann mun segja frá fjallgöngum og klifri í Himalayafjöllum, meðal annars á mjög óaðgengilegum svæðum fjallgarðsins. Fjallað verður um Everestgöngur og nokkrar fyrstu uppgöngur á minna þekkt fjöll. Satya mun einnig ræða um lítt könnuð svæði þar sem ókleifir tindar bíða fyrstu uppgöngu.
Satyabrata Dam – stutt æviágrip
Satya er kafbátaforingi í indverska hernum en lætur af því starfi við næstkomandi áramót. Hann er einn mjög fárra manna sem gengið hafa á tindana sjö, þ.e. hæsta tind hverrar heimsálfu, auk heimskautanna beggja. Á sl. 32 árum hefur Satya klifið fjöll um alla jörð, þar á meðal nær 50 tinda í Himalayafjöllum. Hann hefur tvívegis gengið á Everest og einnig á fjóra aðra tinda hærri en 8000 m. Einnig hefur hann klifið á aðra tylft tinda fyrstur manna. Hann ferðast víða til fyrirlestrahalds um fjallgöngur og ferðalög og hefur ritað bækur um fjallamennsku, auk skáldsagna og tímaritsgreina.
Netfang Satya Dam: satya1302(at)gmail.com
Vefspjall: www.satyabratadam.blogspot.com
