Borði

Hestagirðing við Valshamar

Síðan aðkoman að klifursvæðinu í Valshamri var færð niðurfyrir sumarbústaðalandið hefur nokkuð borið á því að hestar hafi farið í bíla grandlausra klifrara, bitið þá, sleikt og nagað.

 

 

Í gærkvöldi fóru tveir meðlimir stjórnar uppeftir og útbjuggi afgirt hólf sem hægt er að leggja bílum í.  Reistir voru blast staurar og strengur þar til gerður rafmagnsgirðingarvír.  Hægt er að opna alla langhliðana á hólfinu á meðan ekið er inn og loka svo aftur.  Til að byrja með verður ekkert rafmagn á girðingunni en það virtist ekki koma að sök í gær, hestastóðið hélt sig í hæfilegri fjarlægð.  Ef þurfa þykir verður straumgjafa bætt við síðar meir.

 

Við þetta má bæta að Hjalti Rafn fór uppeftir fyrir skömmu og skipti út nokkrum akkerum, sem mörg hver voru komin til ára sinna.  Á hann skilið bestu þakkir fyrir.

 

Girðingin fékk eldskírn samdægurs og virðist vel helstheld


Skjöldur og skjóni voru vel til í að narta í Björgvin, sem var vel varin bakvið girðinguna.