|
Vílað og dílað á öllum vígstöðvum. |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
|
|
Fimmtudagur, 15. október 2009 10:47 |
|
Nú ber vel í veiði fyrir græjuþyrsta því eins og allir vita verður hinn heimsfrægi Búnaðarbazar haldinn í kvöld í húsi Flugbjörgunarsveitarinnar við Flugvallaveg í kvöld. Herlegheitin hefjast kl. 20:00 og eru allir hvattir til að mæta, selja, kaupa, segja sögur, sjá andlit, drekka kakó og vera hressir.
|
|
Nánar...
|
|
|
Skrifað af: Björk Hauksdóttir
|
|
Föstudagur, 09. október 2009 00:01 |
Veturinn virðist vera að koma yfir landið með tilheyrandi tilhlökkun fjallamanna. Það er gaman að segja frá því að nú er Tindfjallaskáli tilbúinn til útleigu eftir ársfjarveru frá fjöllunum. Búið er að setja inn upplýsingar um aðstöðu í skálanum ásamt við hverja á að hafa samband til að panta skálann. Hér má síðan sjá hvenær skálinn er laus.
|
|
Nánar...
|
|
Tindfjallaskáli aftur í fjöllin |
|
Skrifað af: Björk Hauksdóttir
|
|
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 22:39 |
|
Síðastliðna helgi, helgina 14-16 ágúst, hélt hópur vaskra karla og kvenna uppí Tindfjöll og með í för var Tindfjallaskáli. Það var ánægjulegt að fara með skálann til baka eftir árs fjarveru í Reykjavík. Þar sem skálinn var lagfærður og er nú nánast sem nýr.
|
|
Nánar...
|
|
|
Reisugilli Tindfjallaskála |
|
Skrifað af: Björk Hauksdóttir
|
|
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 01:04 |
|
Þriðjudaginn 11. ágúst hittust Ísalparar og gamlir Fjallamenn á planinu á Kirkjusandi til að bera Tindfjallaskála augum áður en hann heldur til síns heima helgina 14-16. ágúst. Ljúffengar pulsur og drykkir runnu ljúflega ofaní mannskapinn í sumarblíðunni.
Það var virkilega gaman að sjá hve margir eldri félagar sáu sér fært að mæta og gaman að heyra gamlar ferðasögur úr Tindfjöllum sem voru m.a. frá hestaferðum þar sem menn tróðu leiðina fyrir dýrunum og brúðkaupsferð eldri félaga frá árinu 1964.
Það voru rifjaðar voru upp margar sögur.
Það voru samankomnir fjölmargir fjallakarlar og konur á Kirkjusandi.
Það var gaman að skoða skálann að innan.
Það var fjöldi fólks sem lagði leið sína á Kirkjusandinn.
Guttormi þakkað innilega fyrir sín störf í þágu fjallamennsku á Íslandi.
Þór Ægisson, Pétur Þorleifsson og Snævarr Guðmundsson.
Óli trukkur, Elín og Kobbi klaki.
Anna, Bjössi Vill, Einar, Jón Geirs og Guðjón Magnússon (fyrrverandi formaður Ísalp)
Hlíf og vinkona (man því miður ekki nafn)
Feðgarnir Maggi Hall og Hörður Magg.
Hallgrímur Magnússon og Magnús Hallgrímsson
Elín, Snædís og Herdís
Jói og Hlynur sem munu flytja skálann aftur uppí Tindfjöll.
Gjaldkerinn og ritarinn, Björk og Skabbi
Eins og Guttormur segir, svona verkefni klárast aldrei. Hér er hann að reyna að koma gaslukt í gang.
Góli
Maggý og dóttirin sem fær nafn eftir viku.
Það á enn eftir að koma hitaranum í gang, Valli og fleiri voru í því verkefni allt kvöldið.
|
|
Skrifað af: Bragi Freyr Gunnarsson
|
|
Föstudagur, 19. júní 2009 00:08 |
|
Skálahópur Ísalp með Guttorm í fylkingarbrjósti hefur lyft grettistaki, en skálinn hefur verið endurreistur nánast frá grunni og stefnir í verklok. Áætlað er að flytja skálann á sinn stað um miðjan ágúst.
Farin verður undirbúningsferð upp í Tindfjöll helgina 26-28 júní. Ísalparar eru hvattir til að mæta og leggja hönd á plóg.
Ekki er nauðsynlegt að vera handlaginn úr hófi fram. Hér þarf hendur til að bera grjót og binda járn.
Nánari upplýsingar veita meðlimir skálahópsins.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |