|
Skrifað af: Björk Hauksdóttir
|
|
Miðvikudagur, 27. janúar 2010 09:14 |
Atli Pálsson og James McEwan félagar í Ísalp og undanfarar í HSSK klifruðu Mt.Cook (3754m), hæsta fjall Nýja Sjálands þann 25. Janúar. Atli varð þar með fyrstur íslendinga til að klifra Mt.Cook sem er eitt af eftirsóttustu markmiðum fjallamanna um allan heim þar sem fjallið er afar fallegt, bratt og gnæfir hátt yfir suður ölpum Nýja Sjálands. Veðráttan á svæðinu minnir um margt á Ísland, kröftug óveður eru algeng en félagarnir Atli og James fengu frábært veður á tindinum, logn og hvergi ský að sjá. Ferðin á fjallið tók fjóra daga í það heila en toppadagurinn sjálfur tók strákana 14,5 klukkustundir. Á heimleiðinni klifruðu strákarnir einnig yfir 3000metra háan fjallshrygg sem skiptir suður ölpunum í tvennt og reyndist sá dagur síst minna ævintýri en fjallið sjálft.
Atli og James á toppi Mt Cook
Fara þurfti yfir þetta ísfall
Þeir fengu gott veður toppadaginn.
Atli og James á toppi Mt Cook
|
|
|
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
|
|
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 09:59 |
Snjóflóðafyrirlesturinn hjá Leifi í gær var einstaklega vel heppnaður og líklega aðsóknarmet slegið. Salurinn var algjörlega pakkaður svo flæddi út um dyr og glugga nánast.
Leifur fór yfir helstu atriði sem fjallafólk þarf að hafa í huga þegar það ferðast á svæðum þar sem snjóflóðahætta er fyrir hendi og skýrði á auðskiljanlegan hátt hvernig veður og landslag hefur áhrif í þessu sambandi. Ísalp þakkar Leifi kærlega fyrir frábæran og fræðandi fyrirlestur.
En við höfum ekki sagt skilið við snjóflóðin því þetta var aðeins fyrri hluti af tveimur. Núna næsta miðvikudag (20.01.10) mun Árni Jónsson sem sér um vefsíðuna snjoflod.is, koma og taka fyrir græju- og tæknihliðina. Hann mun segja okkur frá snjóflóðaýlum og öðrum tækjum og tólum sem nauðsynleg eru til að minnka hættuna á mannfalli í snjóflóðum og fara yfir helstu nýjungar og framfarir á þessu sviði. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20.
Ef að líkum lætur munu svo einhverjir af þeim sem selja snjóflóðaútbúnað á Íslandi koma og kynna sína voru í lok fyrirlestrarins og ekki útilokað að þeir verði með einhver tilboð í gangi.
Viljum minna á að hinir nýju glæsilegu límmiðar Ísalp verða til sölu þetta kvöld. Tilvalin leið til að merkja sig og styrkja klúbbinn: Hjálmalímmiði - 500 kall, öfugur límmiði (t.d. fyrir bílrúður) - 1000 kall. Cash only! |
|
Snjóflóðafyrirlestur á ÍSALP-kvöldi |
|
|
|
|
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
|
|
Sunnudagur, 10. janúar 2010 14:50 |
Nú næsta miðvikudag (13.01.2010), verður haldið ÍSALP-kvöld í sal klúbbsins í Skútuvoginum. Planið er að hafa föst kvöld, fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og markmiðið að vera með eitthvað bitastætt í gangi í hvert skipti.
Að þessu sinni er það enginn annar en Leifur Örn Svavarsson, sérfræðingur í snjóflóðavörnum á veðurstofunni sem mun mæta og flytja erindi um snjóflóð í tengslum við fjallamennsku. Þetta er auðvitað eitthvað sem enginn má láta fram hjá sér fara.
Margir í klúbbnum þekkja eða hafa heyrt um Leif en hann er jú einn reynslumesti fjallaleiðsögumaður Íslands. Hann hóf einmitt fjallamennskuferil sinn með Íslenska Alpaklúbbnum og það fyrir margt löngu. Leifur á að baki fjölda leiðangra og klifurferða hérlendis sem erlendis, þar á meðal á Grænlandi, í Ölpunum, Alaska og Himalaya.
Það er mikill fengur að fá reynslubolta eins og Leif til að fytja erindi fyrir félaga Ísalp og hvetjum við alla til að mæta.
Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20:03.
Þetta er fyrri hluti af tvennu fyrirlestra í tengslum við snjóflóð en Árni Jónsson (snjoflod.is) mun inna skamms heiðra okkur með nærveru sinni og tala um snjóflóðaýla og ýmislegt í tengslum við þá. |
|
|
Skrifað af: Björk Hauksdóttir
|
|
Mánudagur, 21. desember 2009 21:13 |
Laugardaginn 19. desember fór fram árlegt jólaklifur Ísalp, því miður var ekki hægt að skíða sökum snjóleysis í grennd við höfuðborgina. Ákveðið var að halda til klifurs á Sólheimajökli. Sex félagar, Bragi, Berglind, Björk, Arnar Þór, Arnar og Siggi, hittust á Select klukkan 8 um morguninn. Keyrt var í myrkri og komum að jöklinum þegar það byrjaði að birta. Fundum fljótt tvo fína svelgi nálægt hvorum öðrum sem hægt var að leika sér í, hægt að velja lengri og styttri leiðir sem voru báðum megin við 90 gráðurnar. Settar voru upp nokkrar línur og klifrað í kuldanum, en nokkuð kalt var í veðri og með hressandi vindhviðum. En það voru sáttir einstaklingar sem héldu heim á leið kl. 16 eftir gott klifur.
Sigið niður.
Siggi klifrar
Bragi leggur af stað í eina stutta leið.
Félagarnir, Arnar klifrar og Siggi tryggir.
Nestispása, rjómi með kakó.
Arnar Þór tryggir Berglindi.
Berglind brosir og klifrar.
|
|
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
|
|
Laugardagur, 05. desember 2009 11:47 |
Eins og farið er að kvisast út þá er glóðvolgt ársrit Ísalp á leið inn um lúgur félaga núna á næstu dögum. Þetta er líklega allra veglegasta ársritið hingað til og inniheldur það fjölda leiðavísa bæðir fyrir kletta og ís, auk fjölda greina frá félögum eins og venja er. Ritið er merkt 2008-2009 sem þýðir þó ekki að fjallað sé um heil tvö ár heldur hefur þetta með breytta stefnu og útgáfutíma að gera. Bendum lesendum á að renna yfir pistil ritstjórnar fremst í blaðinu þar sem þetta er útskýrt.
Starfsemi klúbbsins hefur að undanförnu verið mjög blómleg og mikill uppgangur í fjallamennsku. Ákveðið var að prenta límmiða með merki klúbbsins og dreifa til félaga. Um er að ræða límmiða sem er 5cm í þvermál og hannaður til að þola nokkuð vel þá áníðslu sem hjálmur þarf að þola og svo annar stærri sem er öfugur (7,5cm) og því tilvalinn fyrir rúður í t.d. bíl. Með þessu vonumst við til að gera klúbbinn enn sýnilegri. Með ársritinu í ár koma því tveir misstórir límmiðar og félagsskírteini sem vert er að passa vel upp á enda ýmsir afslættir sem fást út á það. Munið að kíkja vel í umslagið svo aukaglaðningar lendi ekki óvart í pappírsendurvinnslukörfunni með umslaginu.
Enn er að bætast á listann yfir afslætti. Hægt er að skoða hann hér.
isalp-forsida
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |