BANFF BANFF BANFF Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson   
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 11:40
Eftir þó nokkurn hringlandahátt er nú hægt að staðfesta að Banff fjallamyndahátíðin verður haldin mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. apríl. Þetta eru sem sagt tvö kvöld og sýndar verða mismunandi myndir hvorn dag. Dagskrána má finna hér neðar í fréttinni.


Sýningarnar verða í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6 og hefjast þær stundvíslega klukkan 20:00. Miðaverð á hvort kvöld er 1.000,- kr. fyrir félaga í Ísalp (framvísið félagsskírteini) en 1.200,- kr. fyrir utanfélagsmenn. Ef keyptir eru miðar á bæði kvöldin í einu eru þeir á 1.600,- kr. fyrir félagsmenn og 2.000,- kr. fyrir aðra.


Viljum við biðja fólk um að mæta tímanlega svo hægt sé að halda dagskrá. Seinna kvöldið verða úrslit í ljósmyndasamkeppni Ísalp. Nánari upplýsingar um hana má finna í frétt á forsíðu.


Í ár er hátíðin haldin í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður. Fleiri styðja við bakið á Ísalp á ýmsan hátt og ber þeim að þakka þann stuðning því án hans væri þetta ekki gerlegt.


Við vonumst til að sjá sem flesta og eins og alltaf stólum við á að félagar láti orðið berast og auglýsi hátíðina sem víðast. Dagskráin er fjölbreytt og því eitthvað að finna fyrir allt áhugafólk um útivist og jaðarsport.


Með vorkveðju,
Stjórn ÍSALP

Dagskrá Banff fjallamyndahátíðarinnar 2010

Fyrra kvöldið (26/4)
1. Azazel (Big-wall). 22 mín.
Four friends set out to establish a new route on the Trango Pulpit Tower, a mythic 6000-metre-high rock wall in Pakistan. Days and days of pleasure, quantities of testosterone expended, frozen fingers and naps on the wall.


2. On Sight (Klifur). 16 mín.
On Sight" is the fruition of an idea that many considered impossible: a film capturing the blood, sweat and mystery of on-sight climbing as it happens. The result is a tense, profound and often hilariously funny portrait of climbing's most elusive realm, and a deep insight into what drives the climbers who explore it.


3. Signatures: Canvas of Snow (Skíði). 16 mín.
In Japan there is a cultural connection to the different signatures of terrestrial home - a sense that the rhythm of fall, winter, spring and summer influences the rhythm of the person, their energy, their riding style and the lines they choose. This special edit features skiers, snowboarders, a photographer and a noboarder who are each in tune with this connection to winter and the environment they ride in.


- Hlé -


4. Revolution One (Unicycle). 11 mín.
"Revolution One" takes a look into the history, people and places that have defined the rapidly emerging sport of off-road unicycling. Follow world champion unicyclists Kris Holm and Dan Heaton as they display riding that has blown the minds of viewers worldwide.


5. Mont-Blanc Speed Flying (Kite). 10 mín.
Six speed riders fly from the upper slopes of Mont Blanc down to Chamonix in one continuous 10-minute shot, filmed in Cineflex.


6. First Ascent: Alone on the Wall (Sólóklifur) 24 mín.
After gaining international climbing renown for his landmark free-solo of "Moonlight Buttress" (V, 5.12+, 9 pitches) in Zion National Park, Utah, in April 2008, 24-year-old Alex Honnold moves on to his next big challenge: the first free-solo of the "Regular Northwest Face" route (VI, 5.12a, 23 pitches) on Yosemite’s Half Dome.


7. NWD10: Dust and Bones (Hjól). 15 mín.


Seinna kvöldið (27/4)

1. Rowing the Atlantic (Róðrarafrek). 26 mín.
A few years ago, Roz Savage gave up what for many would be an ideal life (husband, great job, big house), picked up a few pairs of rowing oars and a boat to go with them and set off across the Atlantic Ocean – alone – in a rowboat.


2. Look to the Ground (Hjól). 5 mín.
Look to the Ground" is a snapshot of the inspiring story of Bobby McMullen, a professional athlete who is legally blind and has worked against the odds to become a top mountain bike rider.


3. First Ascent: The Impossible Climb (Klifur). 24 mín.
Star sport climber Chris Sharma takes on his greatest challenge yet: the unclimbed, 90-metre limestone cave on Mt. Clark, California. Chris dangles from one finger, jumps between minuscule handholds and takes 30-metre free falls as he endeavours to make the first ascent of what will be the most difficult rock climb in the world.


- Hlé -


4. Hunlen (Ísklifur). 13 mín.
What happens if you show up to climb one of the biggest frozen waterfalls in Canada -- but it isn't completely frozen? Will Gadd and EJ Plimley battle to do the first ascent of B.C.'s remote Hunlen Falls. Falling ice, crashing water, fear, big fun!


5. Project Megawoosh (Verkfræðinördismi - húmor). 5 mín.
Bruno Kammerl, a German engineer, works to perfect the world's tallest human water slide.


6. Committed 2: Walk of Life (Klifur). 21 mín.
The biggest and most difficult challenge of James Pearson's life - a vast blank slab on the Devon sea cliffs.
This beautiful but terrifying line takes over his life until finally, sick with nerves and fear, he is ready for this scary lead.


7. Re:Sessions (Skíði). 17 mín.
"Re:Session" documents the true wealth of the mountain experience. Check out seven weeks of epic riding in BC and Alaska. Re:Session brings the most talented athletes in the sport together into one must-see film.




banff_logo banff_logo
 
Banff og ljósmyndasamkeppni 26. og 27. apríl Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir   
Laugardagur, 10. apríl 2010 17:58
Banff fjallakvikmyndahátíðin stendur hjarta okkar nærri. Þar sem við viljum að hátíðin verði mest og best þurfum við að fresta henni um tvær vikur. 
Hún mun verða haldin á áður auglýstum stað, í sal Ferðafélags Íslands  Mörkinni en nýjar dagssetningar eru mánudags- og þriðjudagskvöldið 26. og 27. apríl.
Vonandi hittir Banff vel á þetta árið, ekki þykir verra að hafa tvær auka vikur til að láta sig hlakka til!

Innan nokkurra daga verður dagskráin og styrktaraðilar kynntir til leiks. 
Bíðið spennt!

Þar sem Banff seinkar þá fá allir ljósmyndaáhugamenn sem ætla taka þátt í ljósmyndasamkeppninni einnig tvær vikur í viðbót til að finna til allar afburðamyndirnar sem liggja á hörðu diskunum. 
Skilafrestur er nú á miðnætti 25. apríl. 


Með vorkveðju, 
Stjórn ÍSALP


 
Ljósmyndasamkeppni ÍSALP 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir   
Mánudagur, 29. mars 2010 23:01
Nú má segja að komin sé hefð fyrir ljósmyndasamkeppni Ísalp en þetta er 4. árið sem hún er haldin.
Nánar...
 
Veður á fjöllum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson   
Þriðjudagur, 09. mars 2010 23:53
Miðvikudaginn 10. mars flytur Hálfdán Ágústsson veðurfræðingur, fyrirlestur um veður í tengslum við fjallamennsku. Veður er eitthvað sem alltaf þarf að hafa í huga áður en farið er af stað í fjallaferðir. Það er gott að geta lesið í veðrið og rýnt í veðurspár svo gagn sé af en Hálfdán lumar á ýmsum fróðleik sem Ísalparar hafa gott af að frétta af og hann mun að sjálfsögðu svara spurningum um efnið.

Það er mikill fengur í að fá kappann í heimsókn. Fjölmargir Ísalparar hafa undanfarið óskað sérstaklega eftir fyrirlestri sem þessum og því ljóst að áhugi á hverskonar fjallamennskutengdum veðurpælingum er mikill.

Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20 og búist er við að hann standi yfir í um klukkustund. Ekki er ólíklegt að stutt hlé verði gert í miðjum klíðum en þá mun bíða ylvolgt kaffi á könnunni ef að líkum lætur.

- Stjórnin



vedur_img_5747 vedur_img_5747
 
Góðar fréttir af ísaðstæðum í Öræfunum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir   
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 11:24
Gleðifréttir berast okkur úr Öræfunum þar sem ísinn þykknar og þéttist með hverjum klukkutímanum sem líður.

Einhverjar leiðir eru nú þegar í aðstæðum og samkvæmt heimamanninum styttist óðum í að fleiri fylgi í kjölfarið ef marka má veðurspána sem vart verður ísvænni.

Öræfin bjóða upp á gríðarlegt magn ísleiða sem spanna alla flóruna í þeim efnum. Fullorðins verkefni bíða þar eftir leikfélögum sem hafa burði í að frumfara eða endurtaka. Minni verkefni eru þar sömuleiðis í massavís og eiga þau sjálfsagt eftir að nýtast byrjendum vel sem geta bæði æft klifurgetuna í ofanvað eða við leiðsluklifur.

Gisting á vegum Ísalp verður sem fyrr í Vesturhúsum og eru þeir sem ætla að taka þátt í ísfestivali alpaklúbbsins beðnir um að skrá sig hjá Helgu Maríu á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Jafnframt eru þeir sem nú þegar hafa skráð sig beðnir um að afboða sig fari svo að þeir sjái sér ekki fært um að mæta.

Til að kynda upp í mönnum má einnig benda á að leiðir í Testofunni í Stigárdal eru komnar í aðstæður en á ísfestivalinu árið 2000 fór þangað inn flokkur manna og kleif áður ófarnar ísleiðir eins og þeim væri borgað fyrir það. Endilega skoðið leiðarvísi frá Einar í Hofsnesi.

Þó lágu ekki allar mögulegar leiðir í valnum eftir þann vaska hóp og enn má skrá nöfn sín á spjöld íslenskrar fjallamennsku með frumferðum þar inni. Merkilegt þykir einnig að á sömu slóðum hefur opnast nýr möguleiki á ísleiðum með bráðnun jökla því í gili nokkru í Stigárdal eru ókannaðar og þar af leiðandi ófarnar leiðir sem enginn sá á ísfestivalinu árið 2000 þar sem gilið var fullt af jökulís á þeim tíma.


Fyrir byrjendur í sportinu er bent á magnað svæði við Kvísker en um 10 mínútna gangur er að því af hlaði Kvískerjabæja. Sjá umfjöllun um svæðið á síðu Einars.

Þar eru um 10 fallegar leiðir í léttari kantinum, flestar 2 spanna en einhverjar lengri. Þar sest ís að venju fyrst og helst lengst þannig að gera má ráð fyrir feitum ís á því svæði.
Tilvalið til ofanvaðsæfinga.



Bestu kveðjur,

Festivalsnefndin.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL