2301823299

Svör sem þú hefur skrifað

10 umræða - 26 til 35 (af 35)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: fundin og töpuð ísskrúfa í Múlafjalli #52600
    2301823299
    Meðlimur

    Sæll

    Takk fyrir þetta, sáum ykkur einmitt í fyrsta haftinu í morgun. Planið var einnig að kíkja á ísinn í Múlanum sem lítur ennþá furðuvel út, en góða veðrið dró okkur frá skugganum og í Botnsúlurnar.

    Varðandi skrúfuna þá passar lýsingin við skrúfurnar úr skrúfusafninu hjá okkur félögunum. Vorum þarna í Rísanda einmitt fyrir nokkrum vikum, vissi bara ekki að það hefði orðið eftir skrúfa. Skelli skuldinni á Arnar skrúfugleymir þangað til annað kemur í ljós ;)

    kveðja,
    Óðinn

    in reply to: Helgar-rapport #52404
    2301823299
    Meðlimur

    Ég og Gummi stóri vorum í ísleit í Kjósinni á sunnudaginn, eltum spor upp í Kórinn og enduðum á að klifra sömu leið. Vorum einmitt að spá hvaða þvagbelgir hefðu verið þarna á ferð (allt út í pissugulum snjó ;)

    in reply to: Afrek helgarinnar? #52255
    2301823299
    Meðlimur

    Ég og Arnar kíktum í Glymsgil á laugardaginn, fórum upp Krók í frekar þunnum ís, en annars skemmtilegt klifur. Vantar ennþá herslumuninn á að þetta fari allt í góðar aðstæður.

    kv,
    Óðinn

    in reply to: Kalymnos Guide book #51571
    2301823299
    Meðlimur

    Takk kærlega fyrir það Guðjón, verð í bandi við þig fljótlega.

    Langaði einmitt bara rétt að kíkja í hann áður en maður kaupir hann við komu út, upp á e-h upplýsingar sem væri gott að vita áður en maður kemur.

    kv,
    Óðinn

    in reply to: Ísfestival 2007 #51165
    2301823299
    Meðlimur

    Þvílík vonbrigði að komast ekki enda virðist aldeilis ætla að rætast úr þessu festivali. Bíð bara spenntur eftir öllum myndunum og sögunum.

    in reply to: Brýna ísskrúfur #51118
    2301823299
    Meðlimur

    Einhver þyrfti að fjárfesta í svona brýningarvél eins og Needlesports eru með: http://www.needlesports.com/acatalog/Mail_Order_Ice_Screws_35.html

    in reply to: Fundinn BD-hjálmur #50895
    2301823299
    Meðlimur

    Held alveg örugglega að þetta sé hjálmurinn hans Gumma stóra sem týndist á svipuðum slóðum fyrr í vetur.

    in reply to: Aðstæður um helgina #50736
    2301823299
    Meðlimur

    Stefnir allt í fínustu aðstæður! Frostið sem var spáð er amk komið, fékk að finna á því í morgun á hjólinu.

    Hvert langar mönnum annars að fara?

    btw. Líst vel á sunnudaginn.

    in reply to: Kárahnjúkar- nei takk! #50642
    2301823299
    Meðlimur

    Það hugsa allt of margir með sér að framkvæmdirnar séu komnar það langt að nú sé ekki hægt að stöðva þær. Ef allir legðust á eitt og sýndu það í verki að þetta er ekki það sem þjóðin vill þá er ekki hægt annað en að taka tillit til þess og amk fresta fyllingunni um óákveðinn tíma.

    Líka alveg sammála því að sofna ekki á verðinum gagnvart öðrum náttúruauðlindum og vera meira vakandi í framtíðinni gagnvart fyrirhuguðum framkvæmdum.

    Annars finnst mér þetta bara frábært framtak og vona að sem flestir láti skoðun sína í ljós.

    in reply to: Zermatt #50584
    2301823299
    Meðlimur

    Blessaður

    Alltaf leiðinlegt að þurfa að snúa við en efast ekki um að þetta hafi verið þess virði! Finnur svo vonandi eitthvað skemtilegt að bralla áður en þú kemur heim ;)

    kveðja,
    Óðinn

10 umræða - 26 til 35 (af 35)