Ágúst Þór Gunnlaugsson

Svör sem þú hefur skrifað

18 umræða - 176 til 193 (af 193)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Bolta eða ekki Framhald #49728

    Við fórum uppeftir í dag og kíktum á Stiftamt. Sigum niður og klifruðum smá austast í þilinu en þetta er sona frekar laust en vel brúklegt. Spottuðum þrjár til fjórar línur og það yrðu ca. 6-7 boltar í leið. Við rétt kíktum við og skoðuðum vestustu þilin að neðan en leist ekkert rosa vel á. Skoða betur í næstu ferð.

    in reply to: Bolta eða ekki, hver á að ráða? #49722

    Ég held að enginn hafi verið að tala um að stjórnin hafi eitthvað úrskurðarvald með boltun. Það var haldinn stjórnarfundur í gær og stjórnin var sammála um að hún gæti ekki ráðið því hvar væri boltað og hvar ekki. Heldur væri það hjá klifursamfélaginu að taka ákvarðanir um það. Var ekki skilyrði að fá úthlutaða bolta úr boltasjóðnum að það væri ekki boltað í Stardal. Það er ekki flókið. Þó ég sé ekki ,,boltunarsinni“ finnst mér í lagi að bolta nokkrar leiðir í Stiftamt sem ekki er hægt að klifra með náttúrulegum tryggingum. Maður kíkir á þetta á morgun eftir próf.

    in reply to: Bolta eða ekki, hver á að ráða? #49719

    ég held samt að Stiftamtið sé skárri kostur.

    in reply to: Bolta eða ekki, hver á að ráða? #49717

    Ég klifraði einu sinni við Snorrastaðatjarnir og bergið þarna er ágætt nema að klettarnir eru mjög mosagrónir. Ef ekki er hægt að klifra í Stift Amt með trad-style þá getur ekki verið mikið að því að bolta nokkrar auðveldar línur.

    in reply to: Bolta eða ekki, hver á að ráða? #49698

    Það vantar öruggar, boltaðar leiðir í léttari kanntinum í nágrenni Rvk. Hjalti og Kristín boltuðu eina í Valshamri í fyrra sem var gott. En það vantar aðeins meira. Að bolta Stardal er MJÖG viðkvæmt mál en við þurfum að horfast í augun við vandan. Er einhver annar staður í nágrenninu þar sem hægt er að bolta öruggar leiðir. Var ekki umræða um klettavegg nálægt Rauða Turnsins? Ef öll þau sem eru að klifra í Klifurhúsinu fara í Valshamar, væri 30.min bið eftir að fá að klifra.

    in reply to: Myndasýning Stefán Glófax #49680

    Þetta var virkilega pró myndasýning. Flottar myndir blandaðar inn á milli video-brotum.

    in reply to: Banff… #49615

    Sammála Karli með hávaðan. Var alveg að gera mann brjálaðan undir lokin. Væri ekki mál að lækka aðeins volumið í kvöld?

    in reply to: vorboðinn ljúfi á Völlunum #49578

    Fyrst menn eru að tala um kamarinn þá var hann víst í 1000 pörtum þegar nokkrir kíktu á vellina í gær.

    in reply to: Botnsúlur og Glymsgil #49382

    Siggi, þú þarft að vera með diktaphone til að taka upp öll þessi óhljóð sem þú heyrir, svo eftir nokkur ár geturðu mixað þau saman og gefið út disk sem héti t.d; Shit in our pants eða Time to bail. Ég tek eitt stykki!

    in reply to: Ísklifurfestival #49300

    Er þetta þá sona í anda Óshlíðarinnar, klifrað 3 metra frá vegi með lýsingu frá ljósastaurum. Alvöru Roadside!! Lýst vel á. Er maður ekki annars hátt á sjöunda tíman að keyra þangað austur?

    in reply to: Grafarfoss… #49243

    Meira svona eins og krabinn sem maður kaupir úti í sjoppu og drekkur í gegnum rör.

    in reply to: Grafarfoss… #49241

    Samt ennþá meira en nóg af ís.

    in reply to: Grafarfoss… #49240

    Ég og Róbert fórum í gær, sunnudag, í Grafarfoss. Lenntum í rigningu og hættum við eftir ömurlegustu, blautustu og ómerkilegustu spönn sem ég hef klifrað. Líkara væri að lýsa þessu sem klifur í lóðréttum krapa heldur ísfossi.

    in reply to: ,,Risavaxin grýlukerti utan á hamravegg“ #49223

    Samkvæmt myndaalbúmi fjölskyldunnar á mínu heimili er ekkert minna af ís í gljúfrunum þarna fyrir austan Klaustur. Gljúfrin eru ca. 60 metra djúp ef ekki hærri. T.d. Hörgsárgljúfur.

    in reply to: Múlafjall #49189

    Svo er alltaf gaman að sjá klifur á síðum blaðanna, alla vega er ein góð úr Múlafjalli á baksíðu moggans í dag.

    in reply to: Hvernig má bæta vefinn? #49085

    Ég legg til að umræðusíðan verði skýrð ,,Fjallaspjallið“.

    in reply to: HELGRINDUR #48990

    Hef mikinn áhuga á að koma með en er fastur í öðru þessa helgi.

    in reply to: Upptökur á batman í skaftafelli #48544

    Þið getið lesið um atburðarrásina í æsifréttamiðlinum DV í dag, miðvikudag. Hún er frekar bjögðuð og töluverður hluti greinarinnar er tekinn HÉÐAN. Passið hvað þið segið. Það gæti farið lengra en þið haldið.

    Kv. Ágúst

18 umræða - 176 til 193 (af 193)