Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal

Home Umræður Umræður Klettaklifur Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47384
    0808794749
    Meðlimur

    Langaði að deila þessari uppgötvun með ykkur hinum sem kíkið stundum í Valshamar. Kannski eru þetta gamlar fréttir þó ég hafi verið að heyra af þessari snilld fyrst núna.

    Á Bæ í Eilífsdal er að finna veðurstöð og vefmyndavél sem snýr einmitt að Valshamri. Svona tækniundur kemur sér einkar vel á dögum eins og dag þegar skúraði og þyrmdi yfir sumum í Reykjavík meðan sólin bakaði klettana í Valshamri.

    Mæli með þessari veðurstöð og vefmyndavél.
    Kæru ábúendur á Bæ. Takk fyrir afnotin.

    #55507
    Siggi Tommi
    Participant

    Vantar bara að geta snúið henni upp í ísþilin innar í dalnum þegar vetrar…
    Hvernig er afstaðan frá þessum merka bæ upp á það að gera?

    Vorum að gæla við þessa vefmyndarpælingu um árið fyrir Eilífsdals ísaðstæður en ekkert varð meira úr því en góð pæling.

    #55508
    0808794749
    Meðlimur

    Af ja.is sýnist sem afstaðan milli Bæjar og Eilífsdals/íss sé nokkuð góð.
    Það má kannski díla við bóndann um að snúa vélinni er fer að hausta.

    #55509
    gulli
    Participant

    Þetta er frábært … aldrei aftur í Valshamar í leiðinlegu veðri …

    #55510
    0703784699
    Meðlimur

    viðrar ekki vel til loftárása í dag? ætla menn og konur út að leika í dag?

    #55511
    0411856199
    Meðlimur

    Já, og ekki væri verra að hafa tré eða fána inná…til að sjá átt og styrkleika vinds ; )

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.