var að berast – vantar klifurfélaga í sumar

Home Umræður Umræður Klettaklifur var að berast – vantar klifurfélaga í sumar

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45317
    0309673729
    Participant

    Daginn. Ég bý í Kanada en verð heima á Íslandi í sumar og langar að komast í samband við íslenska klifrara á meðan ég er heima. Ég ætlaði að senda erindi á síðuna ykkar en það virðist ekki vera hægt ef maður er ekki félagi í íslenska alpaklúbbnum. Þar sem ég bý ekki á íslandi vil ég ekki vera að borga árgjald í klúbb sem ég að öðru leyti geti ekki notið. Getiði sagt mér hvernig ég get komist í samband við fólk til að klifra með (sérstaklega á Akureyrarsvæðinu) án þess að vera félagi í klúbbnum?

    kristín
    ======================================
    Kristin M. Johannsdottir
    PhD Student, Dept. of Linguistics
    University of British Columbia

    #49742
    Hrappur
    Meðlimur

    Eins gott að hún er með master. Maður klifrar nú ekki með hverjum sem er :)

    #49743
    0704685149
    Meðlimur

    Sæl Kristín,

    Við erum nokkur á Akureyrarsvæðinu sem komum nálægt klifri.
    Þú getur sett þig í samband við okkur, sendu mér tölvupóst
    jmarino@simi.is og ég skal senda þér info.

    …STJÓRN, tóku þið eftir þessu…,,Ég ætlaði að senda erindi á síðuna ykkar en það virðist ekki vera hægt ef maður er ekki félagi í íslenska alpaklúbbnum.“ …ég hef alltaf sagt að þetta hamli aðgangi að klúbbnum…og að þurfa að vera félagi til að skrá sig í ferðir eða námskeið…

    kveðja
    Bassi

    #49744
    0702892889
    Meðlimur

    Það væri nú samt rugl ef hver sem er gæti sent inn erindi, færi bara í tóma vitleysu, býst ég við.

    andri

    #49745
    Hrappur
    Meðlimur

    já nóg er af vittleysingum innan veggja þó maður opni ekki út líka

    #49746
    0704685149
    Meðlimur

    Um að gera að sjá alltaf slæmu hliðarnar á öllu. Ég tel það mun líklegra að við fengum fleiri erindi og fyrirspurnir inn á vefinn sem stuðla að vexti klúbbsins. Erindi sem eru góð og gild, ég trúi að þau yrðu í miklum meirihluta en þau sem eru eitthvað ,,rugl“. Í stað þess að hafa hann lokaðann bara til að fá ekki eitt ,,rugl“ erindi annað slagið. Ef slíkt mundi henda þá væri tekið á því á viðeigandi hátt.

    Eigum við þá ekki að gera líka skráninguna inn í klúbbinn mun strangari? Bara til að vera viss um að ekki einhver geti skráð sig í klúbbinn og skrifað svo eitthvað rugl erinndi inn. Það væri nú agalegt.

    Kveðja Bassi

    #49747
    Hrappur
    Meðlimur

    við borgum allavegana árgjald til að fá að rugla, svo það má eithvað á ruglinu græða.

    kv Yfir Ruggli

    #49748
    0704685149
    Meðlimur

    Ég held ekki að það sé umræðuvefurinn sem er að gera það að menn hópast til að greiða árgjaldið í klúbbinn.

    Ég borga meðal annars árgjaldið til að vonast til að hafa áhrif á það að hafa umræðuvefinn opin svo fólk geti skrifað á hann til að kynnast félögum í klúbbnum. Síðan vonast maður að fólk gangi í klúbbinn eftir að þeir hafa kynnst starfssemi klúbbsins.

    En ef þetta gengur út á að fá eitthvað fyrir peninginn og fá eitthvað sem er frítt fyrir það að vera í klúbbnum. Þá held ég að menn séu komnir langt frá: ,,Markmið félagsins er að efla áhuga manna á fjallamennsku .“

    kv
    Bassi

    #49749
    Hrappur
    Meðlimur

    Góður punktur hjá þér Bassi. Ég er orðinn sammála þér! Þetta getur orðið of lokuð klíka hérna og samræður á netinu eru kannski fyrsta skrefið fyrir nýtt blóð í klúbbinn.

    Einn afruglaður.

    #49750
    2806763069
    Meðlimur

    rugl, rugl, rugl, fugl, dugl, kugl bugl. Þetta er allt rugl og þið eruð allir ruglaðir. Rugl, rugl, rugl!

    Sorry, hef bara verið svo rólegur upp á síðkastið og er að reyna að halda uppi meðaltalinu mínu!

    Annars er mér alveg sama, fannst bara sniðugt hvað rugl getur komið oft fyrir í einum umræðuþræði.

    Einn kol klikkaður

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.