Skíða á Esju

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Skíða á Esju

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46819
    sveinbjo
    Meðlimur

    Ég er telemark skíðamaður ný á svæðinu, og ætlar að fara að skíða á eftir upp á Esjuni. Ég fer þar með stræto, og putta það til baka. Spurningin er, hvar er best að fara upp fra bilstæðið?

    Björn

    #56470
    Sissi
    Moderator

    Sæll,
    ég átta mig ekki 100% á hvað þú ert að pæla.

    -Gönguleiðin á Þverfellshorn í Esju liggur upp frá bílastæðinu þar sem strætó stoppar

    -Ef ætlar að labba uppi á Esjunni skaltu passa að þar getur verið ansi villugjarnt, taktu punkt á Þverfellshorn og ættu þess að vera ekki of nálægt brúnum ef skyggnið versnar

    -Ef þú ætlar að skíða niður hugsa ég að það gæti orðið erfitt, það er þunnt uppi á Móskarðahnjúkum sem þó fá meiri snjó, svo ég held að það væri erfitt að skíða þarna, kannski hægt að þræða einhver gil, ekki viss

    -Það snjóaði mikið í fyrrinótt og skóf í gær, vindpakkaður flekasnjór, gæti hæglega verið snjóflóðahætta í skálum og giljum, gættu að þér varðandi það. Mér hefur líka oft sýnst að skíðamenn eigi í basli með svona crust ofan á snjónum þó að brettin krúsi ofan á því.

    Vona að þetta hjálpi,
    Sissi

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.