Klettaklifurfestival 2003

Home Umræður Umræður Klettaklifur Klettaklifurfestival 2003

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44920
    2003793739
    Meðlimur

    Ákveðið hefur verið að halda Klettaklifurfestival 2003 um næstu helgi, Verslunarmannahelgina á Hnappavöllum. Vegna veðurs var festivalinu frestað í júlí en nú verður þessu ekki frestað lengur.

    Verslunamannahelgin hefur ávallt verið mikil klifurhelgi hjá klifrurum og oft margmenni á Hnappavöllum gegnum árin. Það er því tilvalið að halda klettaklifurfestivalið um þess helgi og góð stemmning í fólki.

    Farið verður úr bænum á einkabílum og slegið upp tjaldbúðum á tjaldstæðinu við Hnappavallahamra.

    Dagskráin yfir helgina verður með hefðbundnu sniði.
    Föstudagur:
    Keyrt austur – uppsetning tjalda.
    Laugardagur:
    Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur – Grill.
    Sunnudagur:
    Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur – Grill.
    Mánudagur:
    Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur og síðan keyrt í bæinn.

    Þessi helgi er sérstaklega hugsuð fyrir hina nýju kynslóð klifurfólks sem hefur verið sívaxandi í vetur og eru allir velkomnir.
    Nú er um að gera að fara skipuleggja hvaða leiðir á að sigra um helgina og leggja sig allan fram.
    Ef verðrið klikkar þá er fullt annað hægt að gera á þessum frábæra stað Hnappavöllum.
    Því fólki sem vantar far austur, upplýsingar um staðsetningu eða einhverjar aðrar upplýsingar geta hringt í mig, Halli, 895-2250.

    Sjáumst á Hnappavöllum um helgina.
    Fyrir hönd Klifurhússins
    Halli

1 umræða (af 1)
  • You must be logged in to reply to this topic.