Glæpur á forsíðu ársritsins….

Home Umræður Umræður Almennt Glæpur á forsíðu ársritsins….

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44971
    Goli
    Meðlimur

    Já þið lásuð rétt, og glæpurinn er minn!

    Finnst rétt að játa þetta áður en okkur verður stillt upp í Kastljósinu að kalla hvort annað lygara eins og nú er móðins :)

    Við Maggý vorum sem sagt ekki alveg viss um það hvort okkar ætti myndina á forsíðunni, en eftir að hafa rýnt í myndina kom í ljós að förin fyrir framan Hlyn eru mín. Maggý er því myndasmiðurinn en myndin var eignuð mér.

    Vonandi hætta barsmíðarnar heima fyrir eftir þessa játningu….. :)

    Já og takk fyrir annars frábært ársrit, hlakka strax til að fá það næsta!

    #51758
    Ólafur
    Participant

    Aðal glæpurinn er náttúrulega að vera með einhverja skíðamynd framan á blaðinu! Er þetta ekki klifur- og fjallamennskuklúbbur en ekki e-ð skíðafélag? Verður forsíðumynd næsta rits af Góla í aprés-ski?

    En myndin er flott….því er ekki að neita. Það vökna alltaf í manni augun þegar maður sér púður.

    ó

    #51759
    0508693779
    Meðlimur

    Þetta gerir útslagið.

    Nú borga ég árgjaldið og sæki ársritið. Maður bara verður að vera vitni að glæp!

    kv lambi

    #51760
    1402734069
    Meðlimur

    ÍSALP hefur nú frá fyrstu tíð eignað sér Telemarkhelgina á Akureyri sem hefur verið stærsta samkoma íslenskra útivistarmanna og kvenna.

    Sýnir þetta ekki bara svart á hvítu hverjir innan Ísalp hafa verið duglegastir?

    Kv.
    Böbbi

    es. Alltaf hægt að tölta á fjöll og ganga í hægðum sínum niður … annað að gera það með stæl á skíðum!

    #51761
    2806763069
    Meðlimur

    Ég er hræddur um að þú getir ekki eignað ykkur skíðamönnum heiðurinn af að vera duglegastir í þetta skiptið.

    Það er nokkuð augljóst hverjir eru duglegastir hvort sem litið er á magn eða gæði — Klettaklifrararnir.

    Allar aðrar greinar hvort sem það er Ísklifur, skíði, háfjallaklifur eða alpinismi eiga í vök að verjast þrátt fyrir ágætist tilþrif stöku einstaklinga.

    kannski er máið að fara að verða sér úti um innanhúss aðstöðu fyrir þessar greinar líka!

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.