Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Telemark

Telemark 25 des 2009 11:46 #9579

Skrifað 25 des 2009 11:46
Góðan daginn og gleðileg jól

Ég fekk í jólagjöf þessi ágætu telemark skíði. Það er allt gott og blessað, vandamálið er að ég kann ekkert á þau :D

Er einhver hérna á norðurlandi sem væri til í að koma með mér á skíði og hugsanlega leiðbeina mér eitthvað?

Annars verð ég hugsanlega eitthvað að rembast við að renna mér. Allir sem vilja vera með hvort sem það séu amatör snjóþotu rennarar eða pro telemark rennarar eru aðsjálfsögðu velkomnir.

einhverjar hugmyndir um stað og stund?


Bjarni: 848-8759

Svar:Telemark 25 des 2009 13:52 #9580

Skrifað 25 des 2009 13:52
Það er að sjálfsögðu best að fá tilsögn en í neyð má lesa sér til.

Ég lærði sveifluna í þessum bréfaskóla: telemarktips.com/Lesson.htm

Svar:Telemark 25 des 2009 14:48 #9581

Skrifað 25 des 2009 14:48
Sæll Bjarni, og gleðilega hátíð
Við erum nokkrir hér fyrir norðan sem eru á telemark og fögnum því að fá nýtt fólk ínn í sportið, ég man sjálfur hvernig var að byrja að skíða meða lausan hælinn. Í þá daga voru einungis leðurskór og Fischer E99 skíði í boði , en þetta meikar meiri sens núna með betri búnað og eru fólk yfirleitt styttri tíma að ná tökin á þelamerkurstílnum.
Ég er oft uppí fjalli og gæti því kennt þér tökin á stílnum við gott tækifæri. Annars er símanúmerið mitt-- 8655999
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.17 sek