Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Snjór

Snjór 06 okt 2009 17:14 #9098

Skrifað 06 okt 2009 17:14
Ráfaði óvart inn á vef skíðasvæðanna núna áðan. Svo virðist sem talsvert hafi snjóað a.m.k er opin göngubraut. Eitthvað nefna menn hugsanlega opnun bráðlega a.m.k. er byrjað að troða í Fjallinu. Ágætis fréttir fyrir skíðamenn.

Kv. Árni Alf.

Svar:Snjór 07 okt 2009 00:31 #9100

Skrifað 07 okt 2009 00:31
Hefur þú rekist á einhverja brettadúdda?

Svar:Snjór 07 okt 2009 16:20 #9102

Skrifað 07 okt 2009 16:20
Núna eru allar skíðaleiðir í Bláfjöllum sem landmótaðar voru í fyrrasumar og snjógirðingar reistar meðfram komnar inn. Þ.m.t. Norðurleiðin lang vinsælasta skíðaæðin.

Það er því í raun engin fyrirstaða að opna nema helst skítaveður a.m.k. næstu daga.

Ég tel að þarna sé komin enn ein sönnunin fyrir byltingarkenndu gildi þess að girða og landmóta. Skíðaleiðir sem ekki hefur verið landmótað og girt við eru hins vegar ekki inni þ.e.a.s. snjólausar að kalla. Þetta sýnir kannski best mátt girðinganna.

Að það sé fræðilega hægt að opna Bláfjöllin svona snemma sýnir hvað landmótunar- og girðingastefnan er að skila skíðafólki.

Kv. Árni Alf.

Svar:Snjór 08 okt 2009 11:51 #9104

Skrifað 08 okt 2009 11:51
Húrra fyrir snjógirðingum, sem gera gagn!
Húrra fyrir brettaravídjóinu, sem er fyndið!
&
Húrra fyrir kaffi, sem er gott, ekkert húrra fyrir iðnaðarmannakaffi!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:Snjór 08 okt 2009 12:21 #9105

Skrifað 08 okt 2009 12:21
Er samt ekki hægt að laga vefmyndavélina, bara af því að það er svo gaman að sjá? :)

Svar:Snjór 08 okt 2009 13:48 #9106

Skrifað 08 okt 2009 13:48
Ertu að vonast til að sjá "göngubrettara" í vefmyndavélinni?
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek