Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Pre season fiðringur

Pre season fiðringur 02 sep 2009 12:23 #8994

Skrifað 02 sep 2009 12:23
Jæja, þá er komin september, sumarið búið, haustið komið og loksins leyfilegt að fara að peppa sig upp fyrir vetrarvertíðina.

Hjá mér byrjar pre-seasonið að gera vart við sig með óvenju miklu hangsi inná síðum eins og Backcountry.com (því búnaðarkaup í ár eru like, so likely) og Biglines.com og maður horfir á trailerana fyrir nýju skíðamyndunum í staðin fyrir að fylgjast með því hvað kennarinn er að þvaðra.

Nýju trailerarnir hjá bæði TGR og Matchstick Prod lofa góðu, eins og vanalega:

(

().

Eru fleiri komnir með pre-season fiðring? Einhver stórkaup í vændum? Hvaða skíði verða heitust í ár? Verða allir komnir á hlussu rocker skíði í Bláfjöllum í vetur? Eða er það fuck Ísland og flýja til Kanada?

Kv. ein spennt fyrir vetrinum.

Svar:Pre season fiðringur 02 sep 2009 20:19 #8996

Skrifað 02 sep 2009 20:19
úff þetta er hellvíti flott, Sjáumst í Kanada í vetur ;)

Svar:Pre season fiðringur 02 sep 2009 22:37 #8997

Skrifað 02 sep 2009 22:37
Vetur í Kanada! Hef heirt af fullt af liði með stefnu á Golden í vetur. Góð ráð, allt stefnir í en einn El Nino veturinn þannig að ef skíðamennskan er málið...þá færi ég frekar til Revelstoke þar sem snjórinn verður betri!!! En hvað veit ég ?
Hilsen ú 30° hita í Canmore (sem er ekki skíðahöfuðborg Kanada)
F

Svar:Pre season fiðringur 02 sep 2009 23:42 #8998

Skrifað 02 sep 2009 23:42
El ninorillo, það er nú bullandi hiti hérna í Kamloops i Canada. Ég og doddi búnir að vera stikna í 30°.. bíðum spenntir eftir góðum vetri og vonandi góðum snjó í kring..
Kveðjur frá Canada

Svar:Pre season fiðringur 03 sep 2009 12:00 #9000

Skrifað 03 sep 2009 12:00
Já gamla góða Kanada. Vonandi að það verði aðeins betri vetur en í fyrra.

Svona fyrst að Revy kom til tals þá vil ég endilega fá að henda fram spurningu um staðin.. Nú er augljóst að þarna er first class terrain og ansi miklar líkur á góðum sjóalögum en hvernig er bærin? Ég hef heyrt orðunum lumberjack og red neck notuð ansi oft í samhengi við Revelstoke? En svo hlítur reyndar líka að vera ástæða fyrir því að staðurinn sé kallaður Revel to the Stoke.

úff, ég held það verði að vera Kanada-ferð í vetur. Sé þetta alveg fyrir mér, sitja á barnum (helst Mikes í Nelson) eftir epískan púður dag, sötra öl og horfa á Canucks vs Calgary Flames á stóra skjánum.

Svar:Pre season fiðringur 04 sep 2009 10:45 #9001

Skrifað 04 sep 2009 10:45
Anna hvað ertu að gera okkur hérna í rigningarseasoninu?! Annars líst mér vel á Kanada ;)

Frekar mikið töff video!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek