Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hátindur

Hátindur fyrir 2 árum, 10 mánuðum síðan #8473

Skrifað fyrir 2 árum, 10 mánuðum síðan
Fór með Sigga Skarp og Geir Ólafs (söngvaranum sko) á Hátind í dag. Skíðuðum (og brettuðum fyrir þá sem eru töff) niður Y gilið sem er vestan megin í Hátindi, þann hluta sem er sunnar eða skiers-left.

Prýðileg skemmtun, fínt færi uppi en breyttist svo í límsnjó þegar neðar dró. Þetta voru einhverjir 3,5 tímar úr bíl í bíl og kannski 700 metra dropp.

Móskarðshnjúkar litu líka mjög vel út.

Hils,
Sissi

Búlder aðstæður fyrir 2 árum, 10 mánuðum síðan #8474

Skrifað fyrir 2 árum, 10 mánuðum síðan
Við Andri röltum líka upp í Jósepsdal mótiveraðir af nýja flotta boulder tópónum. Skemmst frá því að segja að þetta er ekki alveg komið inn, vegurinn drullusvað og síðan farinn í sundur og ófær.

Létum það ekki stoppa okkur og röltum uppeftir, probbarnir eru sumir hverjir undir snjó þannig að það þarf að gefa þessu nokkra daga af þíðu í viðbót.

Sissi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek