Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Pistillinn

Pistillinn 16 mar 2009 20:59 #8370

Skrifað 16 mar 2009 20:59
Takk fyrir frábæra helgi.

og Sveinborg takk kærlega að taka af skarið og skrifa frábæran pistil um Telemarkfestivalið.

...þarna náði ég enn og aftur að koma af mér einu verki í tengslum við Telemarkfestivalið...

Bara að láta þig vita að sunnudagurinn var líka svaka fínn þangað til það var lokað vegna suðvestan roks.

kveðja
Bassi

svar: Pistillinn 16 mar 2009 21:05 #8371

Skrifað 16 mar 2009 21:05
Ég vil líka óska Skúla Magg til hamingju með titilinn Sunnlendingur ársins, hann er vel að þessu kominn og vafalaust verður þetta árviss viðburður héðan í frá.

S

SÁR 16 mar 2009 21:29 #8372

Skrifað 16 mar 2009 21:29
eða bara Sunnlendingur ársins verða hiklaust eftarsóknaverðustu verðlaun komandi ára.
hverjum veitir ekki af peningaverðlaunum í kreppunni.

til hamingju með það skúli.

ég vona samt sissi að þetta hafi ekki verið farand-verðlaun!

svar: SÁR 16 mar 2009 21:39 #8373

Skrifað 16 mar 2009 21:39
Ég mætti fyrsta skipti og hafði verulega gaman af.

Þurfti samt smá útskýringar á þessum ríg milli sunnan og norðanmanna.

kv.
Palli

Pistillinn 17 mar 2009 11:02 #8374

Skrifað 17 mar 2009 11:02
Takk öll fyrir skemmtilega og sérlega vel heppnaða helgi. Mér finnst ég fá of mikinn hluta hróss fyrir það eitt að góla á lýðinn með lúðri og hjálpa til við að leggja braut, það voru Maggý og Sólveig sem kýldu þessa keppni áfram öðrum fremur og gátu ekkert skíðað á laugardaginn (enda önnur þeirra á hækjum). Mikil fórnfýsi fyrir málstaðinn þar.

Við erum að velta fyrir okkur hverja við skorum á næst að reka áfram keppnina, því það getur ekki verið sama fólkið ár eftir ár (ég rétt náði 1 ferð í púðrinu). Tilnefningar eru vel þegnar...... látið heyra!

Takk aftur allir, þetta var geggjað og samantektin hjá Sveinborgu helvíti flott !!!

svar: Pistillinn 17 mar 2009 11:07 #8375

Skrifað 17 mar 2009 11:07
Spurning um að láta Akureyringana sjá um keppnina næsta ár.
Það hefur þá kosti að, þeir sem koma að sunnan geta skíðað að vild en aftur á móti er hætta á því að rígurinn magnist sem Palli fann fyrir.

kv.
Bassi

svar: Pistillinn 17 mar 2009 11:11 #8376

Skrifað 17 mar 2009 11:11
...en Góli minn, þú hafðir allan sunnudaginn út af fyrir þig.
En ég sá þig ekki á skíðum á sunnudagsmorguninn, eins og hann var nú fagur og fallegur...
kv.
Bassi

svar: Pistillinn 17 mar 2009 20:18 #8377

Skrifað 17 mar 2009 20:18
ja hérna, þessi helgi var geðveik , og ekkert annað og takk fyrir okkur og ykkur og allt geðveikt . . . . . .

TAT

svar: Pistillinn 18 mar 2009 12:17 #8378

Skrifað 18 mar 2009 12:17
Vinafélag íslenskrar náttúru, betur þekkt sem VÍN þakkar frábæra telemarkhelgi.

Bendi á nokkrar góðar myndir af aprés-skiinu, teknum af einum hirðljósmyndara VÍN, fyrir þá sem misstu af því.

www.flickr.com/photos/avarab/sets/72157615203581443/

svar: Pistillinn 18 mar 2009 13:18 #8379

Skrifað 18 mar 2009 13:18
Hææ
Takk kærlega fyrir mig um helgina, skemmti mér bilaðslega vel.
Allt tipptopp ...færið fjörið, maturinn, músikin..

Og Bassi ég þakka gormagreiðann :)

Sjáumst að ári
kv Heiða

svar: Pistillinn 18 mar 2009 15:14 #8380

Skrifað 18 mar 2009 15:14
Akureyringar sjá um keppnina að ári - það er samþykkt !!! En þetta skot með sunnudaginn er undir belti, eftir að hafa étið egg, beikon og steiktar pylsur í morgunmat og gengið frá íbúðinni var haldið í fjallið. Tókum því rólega í þeirri vissu að fyrir norðan væri alltaf gott veður, en fuss og svei, rok og læti þannig að við hættum við. Stuttu seinna lokaði strýtan.

En maður getur ekki annað en verið í skýjunum eftir helgina. Toppurinn var þegar við Rúnar veltumst niður hlíðina rétt fyrir fimm á laugardag.

svar: Pistillinn 18 mar 2009 19:41 #8381

Skrifað 18 mar 2009 19:41
Það er komin tími til að Akureyringar leggi brautina. En regluverk Góla er komið til að vera, ágætis lagagrunnur af því sem koma skal, já og brautin var fín.
Annars vil ég þakka fyrir frábæra helgi, þetta eftirskíð var sérstaklega vel hannað, tónlistin hreinsandi.

Sjáumst að ári
kv
Valli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.48 sek