Hinar hrikalegu og óhagganlegu reglur um samhliðasvig á Telemarkfestivali 2009:
1. Skráning hefst kl. 12:00 og lýkur kl. 12:45. Klukka keppnisstjórnar er alltaf rétt.
2. Keppandi skal mæta sjálfur á staðinn til að skrá sig, því keppni hefst fljótlega að lokinni skráningu.
3. Ekki er leyfilegt að skrá sig til keppni eftir að skráningu líkur (er það ekki augljóst).
4. Nöfn keppenda fara í pott og verður strax eftir skráningu dregið um það hverjir keppa á móti hverjum og í hvaða braut.
5. Keppninni verður strax í fyrstu umferð raðað upp þannig að gangi upp í tölurnar 2, 4, 8, 16, 32, 64..... þannig að ekki verði þörf á uppbótarmönnum. Þeir sem fyrstir skrá sig munu sitja hjá í fyrstu umferð gerist þess þörf, sjá þó um sigurvegara síðasta árs í lið 6.
6. Þeir keppendur sem seinastir skrá sig til leiks (ein kona og einn karl) lenda sjálfkrafa á móti sigurvegara frá árinu áður í fyrstu umferð. Sigurvegarar frá því í fyrra voru Böbbi og Berglind.
7. Ef keppandi er ekki kominn á svæðið þegar hann skal hefja leik, fellur hann úr keppni og sá sem keppa átti við hann kemst áfram í næstu umferð.
8. Í hverri beygju skal fara niður í Telemarkstellingu. Ef vafi leikur á að svo hafi verið gildir úrskurður keppnisstjórnar möglunarlaust og hananú!
Keppnisstjórn samanstendur meðal annars af fatlafólum með hækjur að vopni og óléttum konum á hormónatrippi þannig að mótbárur við ákvörðun keppnisstjórnar hefur afleiðingar sem engin leið er að taka ábyrgð á !!!!
Óskum öllum góðrar og skemmtilegrar keppni !!!!!!
Keppnisstjórn samhliðasvigs - HSG og vinir.