Jæja skíðafólk... nú þarf ég á ykkar hjálp að halda. Ég fékk gefins einu sinni gömul stálkanta gönguskíði án bindinga. Mig langar að fá bindingar á þau, helst sem ég get notað með alstífum klifurskóm. Til vara, bindingar fyrir þessa klassísku 75 mm gönguskíðaskó, eitthvað í áttina að þessu:
www.sierratradingpost.com/i/66492,,2_Ali...s-75-mm-For-Men.html
En ég vil auðvitað helst geta notað sömu skó og ég klifra í.
Er að hugsa um að nota þetta til að ferðast á, er ekki að setja niðurrennsliseiginleika í fyrirrúm. Þess vegna væri ég til í einhverjar mjög einfaldar bindingar, léttar og auðstillanlegar en mikill kostur ef hægt er að hækka þær upp að aftan með kubb eða einhverju öðru systemi. Já og skinn... vantar svoleiðis líka. Ef einhver á þau og vill losna við þá vil ég skoða það.
Ef einhver getur bent mér á svona system þá er það vel þegið. Til í að kaupa svona lagað notað eða nýtt ef það er til. Veit mjög lítið um þessi skíðamál og því leita ég til ykkar.
Svo vantar mig gönguskíðaskó (þriggja punkta, 75 mm) í stærð 39 sirka, fyrir konuna. Það er til að nota á venjulega kantalaus gönguskíði og þeir geta bara verið svona linir og einfaldir.
Allar ábendingar varðandi þessi atriði eru vel þegin.
Takk,
Kv. BH