Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Utanbrautarskíðun á léttan hátt

Utanbrautarskíðun á léttan hátt 04 des 2008 16:18 #7518

Skrifað 04 des 2008 16:18
Ég var að fá þær fréttir að efra skíðasvæðið á Siglufirði sé orðið opið. Það bíður upp á ótrúlega góða möguleika að ná mörgum góðum leiðum. Svæðið er opið alla helgina og enn snjóar hér fyrir norðan.

Sjá t.d. vefmyndvélina á Sigló.

157.157.79.85/Jview.htm

hér eru upplýsingar um svæðið:

skard.fjallabyggd.is/forsida/

kveðja
Bassi

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 04 des 2008 16:45 #7519

Skrifað 04 des 2008 16:45
Erum 9 stykki á leiðinni norður á Sigló um helgina, væri gaman að vita ef fleiri verða á svæðinu...

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 04 des 2008 17:30 #7520

Skrifað 04 des 2008 17:30
með puttann á púlsinum þykir mér!
hlakka til að taka út fjallið og færið.
sjáumst á sigló.

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 04 des 2008 22:28 #7521

Skrifað 04 des 2008 22:28
Það er gaman að heyra að þið skulið ætla að heimsækja okkur hér í Fjallabyggð. Verið ævinlega velkomin. Það er aldrei að vita nema maður skelli sér í vesturbæinn á skíði ef það verður fært yfir lágheiðina. Það væri gaman...

Bassi, ertu nokkuð farinn að sakna skíðanna þinna allt of mikið? Ég er enn að bíða eftir varahlutum. Ef þig vantar þau get ég reddað því með stöng úr öðrum bindingum.

Kveðja,
Jón Hrói

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 05 des 2008 09:29 #7522

Skrifað 05 des 2008 09:29
Hvaða vitleysa er þetta með Fjallabyggð ... og vesturbæ?

Sem uppalinn Ólafsfirðingur, fæddur á Siglufirði, ættu allir að fá að vita að Fjallabyggðarnafnið er stjórnsýslunafn og notkun á einhverju öðru en þeirra eigin bæjarnöfnum er helv... rugl.

.... en svo við snúum okkur að því sem skiptir öllu máli, skíðin!!!

Verður Búngulyftan opin??

Sjáumst f. Norðan á nýja árinu!! :)

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 05 des 2008 10:12 #7523

Skrifað 05 des 2008 10:12
Ég var nú því miður engu nær hvort þetta væri á suður-norður eða austurlandi þessi Fjallabyggð þegar ég sá þetta fyrst. Ég þurfti að "Gúgla" nafnið til að vera einhverju nær.
Olli

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 07 des 2008 11:37 #7524

Skrifað 07 des 2008 11:37
Jón Hrói, ég sakna þeirra ekkert en ég man samt hvar þau eru, ásamt skónum.

Ef þú veist af kaupanda þá eru þau til sölu ásamt skónum fyrir litið. Ég er búinn að átta mig á því að ég hef komist án þeirra í gegnum lífið.

kv.
Bassi

svar: Utanbrautarskíðun á léttan hátt 08 des 2008 02:49 #7525

Skrifað 08 des 2008 02:49
Innleggið frá Þorvaldi sýnir að það er full þörf á að koma nafni Fjallabyggðar á framfæri við hvert tækifæri og tengja það við Siglufjörð og Ólafsfjörð, en hafðu engar áhyggjur Böbbi, nöfn fæðingarbæjarins og gamla heimabæjarins þíns verða áfram notuð og gleymast ekkert. Mér fannst bara réttara að nota F-orðið í þetta skiptið þar sem ég bý í Ólafsfirði og var í raun að bjóða fólk velkomið til Siglufjarðar! Einhverjum hefði e.t.v. fundist það skrýtið.
Til að svara spurningunni þá var opið í Bungulyftuna um helgina samkvæmt heimasíðu skíðasvæðisins og þar stendur að færið hafi verið gott.

Bassi, ætli það sé ekki rétt að við ræðum verð, úr því ég er búinn að liggja á skíðunum þetta lengi og ef þú vilt losna við þau. Ég heyri í þér einhverntíman eftir að fer að daga...

Kveðja,
Jón Hrói
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek