Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: hot stuff frá telemarkfestivali

hot stuff frá telemarkfestivali 13 mar 2008 14:07 #6603

Skrifað 13 mar 2008 14:07
Myndirnar mínar frá telemarkfestivali eru komnar á netið.
Fullt af myndum úr brautinni. Tækifæri fyrir keppnisfólkið til að tékka á lúkkinu... sumir eru greinilega alltaf með tunguna úti þegar þeir vanda sig.

sveinborg.smugmug.com/gallery/4506074_BhB9z#265273756

svar: hot stuff frá telemarkfestivali 14 mar 2008 08:22 #6604

Skrifað 14 mar 2008 08:22
Flottar myndir, jólasveinarnir þakka fyrir sig!

Reyndar vilja þeir sveinarnir þakka Tátunum sérstaklega fyrir að stuðla að framgangi jólanna, þó ekki hafi dugað alveg til efstu metorða. Og já líka fyrir matarstússið, þeir Ketkrókur, Bjúgnakrækir og Skyrgámur voru hæstánægðir. Askasleikir sá svo um uppvaskið.

P.S. Hvar var Sissi?

svar: hot stuff frá telemarkfestivali 14 mar 2008 08:36 #6605

Skrifað 14 mar 2008 08:36
Mér finnst síðustu myndirnar full völsalegar og myndasmiðurinn er ung nunna.

Sissi er bretta dúdd sem á eftir að þroskast.
Þú sást nú menn eins og Geir sem eru komnir á 2. Level það er merki um þroska.

svar: hot stuff frá telemarkfestivali 14 mar 2008 09:54 #6606

Skrifað 14 mar 2008 09:54
stundum þarf maður orðabók á menn eins og bassa. en með nunnu-innsæi þá má alveg skilja norðlenskuna!

svar: Fleira hot stuff frá telemarkfestivali 14 mar 2008 11:16 #6607

Skrifað 14 mar 2008 11:16
Fann þessa síðu:

arnarogberglind.smugmug.com/gallery/4507841_skhEh#265364198

Fullt af góðum myndum ...t.d. af mér

kv. Bassi

svar: Fleira hot stuff frá telemarkfestivali 14 mar 2008 12:59 #6608

Skrifað 14 mar 2008 12:59
Mér ber víst skylda til að commenta á allt sem tengist telemark, enda leiðandi afl í umræðum um slík mál hér á vefnum.

Stefnan er sett á að þroskast. Eftir 35 ár stefni ég að því að læra golf, að spila vist og telemark. Ég mun einnig neyta matarkexx í miklu magni.

Gaman að sjá að Siggi er alltaf að prjóna, hann fer svo hratt. En hvernig er með svörtu vindskeiðarnar á keppnisbílunum frá nashyrningunum, var formúlusambandið búið að samþykkja þetta? Mjög "eró" eins og verkfræðingarnir segja. (Takið eftir tvíræðninni).

Líka glæsilegt feisplant þarna á 2 stöðum. Ef maður dettur ekki er maður ekki að reyna. Þetta fólk vinnur!

En lokaspurningin: af hverju fór keppnin fram í barnabrekkunni?

Kveðja,
Sissi (kann bara á eitt skíði í einu)

svar: Fleira hot stuff frá telemarkfestivali 19 mar 2008 18:36 #6609

Skrifað 19 mar 2008 18:36
Ég setti í nokkrar myndir um helgina....

www.flickr.com/photos/sigurbjorn/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek